12.04.1933
Efri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2325 í B-deild Alþingistíðinda. (3705)

93. mál, ábúðarlög

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Ég vil þakka hv. landbn. fyrir þá vinnu, sem hún hefir lagt í athugun á þessu frv. Flestar þessar breyt. eru smávægilegar, og get ég eftir atvikum verið þeim samþykkur. Ég tel samt orka tvímælis um fyrstu brtt., hvort ekki sé rétt að tryggja sér nokkra búfræðilega aðstoð, þegar skipta á jörðum. Tel ég þess vegna ekki til bóta fyrstu brtt., um að fella burt orðin í síðustu málsgr. 2. gr., um að samþykki trúnaðarmanns Búnaðarfél. Ísl. komi til.

2. brtt., við 2. málsgr. 9. gr., er sjálfsögð til skýringar. Sömuleiðis 3. brtt., við 11. gr., að þau jarðarhús, sem þar koma til greina, séu nothæf. Það leiðir af sjálfu sér, að ekki er hægt að miða húsabótaskylduna við önnur hús en þau, sem eru nothæf til búrekstrar á jörðinni. Er ég því þessari brtt. fyllilega samþykkur og ennfremur breyt. við fyrirsögn V. kafla.

Aðalbreyt. n. eru við 12. gr. Það kann e. t. v. að orka tvímælis að því er snertir skyldur þær, sem lagðar eru almennt á leiguliða, þegar um endurreisn jarðarhúsa er að ræða, að þær séu réttmætar. En ég get verið því atriði fullkomlega sammála, sem hv. frsm. benti réttilega á, að það hefir þjóðhagslega þýðingu, enda miklu ódýrara, að þau verk, sem hér um ræðir, séu unnin af þeim mönnum, sem eiga hægast með að vinna að þeim í ígripum og í tómstundavinnu með heimilisfólki sínu. Hinsvegar höfum við við ýmsar opinberar byggingar allraunalega reynslu fyrir því, hvað reikningar fyrir ýms undirbúningsverk, t. d. rif tótta, gröft og aðdrætti, eru oft óeðlilega háir. Svo mundi líka geta farið um þetta, ef ekki væri eitthvert aðhald. En viðvíkjandi nokkrum atriðum í þessari grein vildi ég samt eiga tal við n. áður en frv. væntanlega fer til 3. umr.

5. brtt., við 14. gr., leiðir af þeim breyt., sem gerðar eru á 12. gr., og skal ég ekki fara fleiri orðum um hana.

Ég get verið samþykkur 8. brtt., um að hrognkelsaveiðin komi fráfaranda að notum. Sömuleiðis mun vera rétt og fyllra að kveða svo að orði eins og lagt er til í 9. brtt., við 25. gr., þar sem þessi lög gætu e. t. v. komið í bág við laxveiðalögin, ef þessu innskoti væri ekki bætt inn í.

Um 10. og 11. brtt. þarf ekki að fjölyrða. Þær virðast sjálfsagðar eins og nú er komið. Og 12. og 13. brtt. get ég einnig verið samþykkur. Leiðir það af sjálfu sér, ef 12. gr. breytist á þann hátt, sem n. hefir lagt til.

Aðrar breyt. skipta ekki svo miklu máli, að ég sjái ástæðu til að fjölyrða um þær.