19.05.1933
Neðri deild: 78. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í C-deild Alþingistíðinda. (3709)
36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum
Guðbrandur Ísberg:
Þess hefir verið getið í umr., að hér væri lítið frv. á ferðinni, og þess hefir ennfremur verið getið, að það væri lítilsvert, þannig, að það væri ekkert verulegt fjárhagsatriði fyrir þá, sem hlut eiga að máli, hvort það yrði samþ. eða ekki. En ég vil bæta því við, að auk þess sem frv. er lítið og lítilsvert, þá er það líka leiðinlegt af því að það gengur of nærri metnaði bændastéttarinnar, þeirrar stéttar, sem hér á að fara að hjálpa. Þegar rætt er um hugarfar og hagsmuni bændastéttarinnar, tel ég mig geta úr flokki talað. Í fyrsta lagi af því, að ég er alinn upp í sveit, í öðru lagi fyrir það, að ég hefi verið bóndi í 7 ár. En auk þess, sem ég hefi verið bóndi, hefi ég líka verið verkamaður, skrifstofumaður og sjómaður, og hefi því fleira til samanburðar við bóndastöðuna en flestir aðrir. Og ég vil taka það fram í þessu sambandi, að mér væri það ekki óljúf tilhugsun að verða bóndi aftur. Örðugleikar þeir, sem bændastéttin á við að búa, vaxa mér ekki í augum. En það er annað, sem mér mundi falla þyngra, ef fyrir mér ætti að liggja að verða aftur bóndi, og það er það, ef búið yrði að ganga svo nærri metnaði bændastéttarinnar, að þeir væru farnir að líta á sjálfa sig sem ölmusustétt, og allar aðrar stéttir þjóðfélagsins teldu sig hafa fengið rétt til þess að líta niður á þá. Ef svo væri komið, mundi mér falla þungt að gerast bóndi aftur.
Nú ætlast ég ekki til, að þessi ummæli mín séu skilin svo, að ég telji alla styrki og öll lán til bænda ölmusugjafir. Um lán úr byggingar- og landnámssjóði, sem að nokkru leyti eru líka styrkir, er það að segja, að það kemur mest til góða fyrir framtíðina, fyrir eftirkomendurna. Þeir bændur, sem leggja í þær byggingar, njóta þeirra ekki nema að litlu leyti, og þau þægindi, sem þeir hafa af þeim, gera a. m. k. ekki betur en jafnast á móti þeim óþægindum af auknum skuldum, sem bændurnir lenda í vegna bygginganna. Svipað er með þann styrk, sem veittur er til ræktunar. Þar er verið meðfram að vinna fyrir eftirkomendurna. Það er á sinn hátt fjárhagsleg nauðsyn bæði núlifandi og komandi kynslóða. Loks eru kreppulánin. Sú hjálp er nú hugsuð sem lán, en ekki styrkur, og þau eiga að gera mögulegt fyrir bændur að haldast við í sveitunum og koma í veg fyrir það, að þeir flytjist í kaupstaðina og bætist í hóp atvinnuleysingjanna á mölinni. Í öllum þessum tilfellum er um þjóðarnauðsyn að ræða. En þegar þetta frv. kemur, þá er það viðurkennt jafnvel af flutningsmönnunum sjálfum, að þar sé alls ekki um neina nauðsyn að ræða. Nú er hér ekki um beinan styrk að ræða. Það mætti miklu fremur segja, að það væri óbeinn styrkur. Það er farið fram á að fella niður útflutningsgjald af kjöti, sem aðeins nemur einum eyri af hverju kg. Þetta er svo nauðalítið gjald, að það sýnist ekki muna framleiðendur neinu, en þó er þetta sótt af mjög miklu kappi. Það er eftirtektarvert, að einn af þeim hv. þm., sem hafa gerzt formælendur frv., lét sig ekki klígja við því fyrir fáum dögum að berjast fyrir því, að hækkað yrði útflutningsgjald af einni framleiðsluvöru um ekki minna en 25%, og þó var þar um vöru að ræða, sem fátækir verkamenn í þorpum framleiða og hafa atvinnu við. (SvbH: Hver var það?). Það var hv. þm. V.-Húnv. Þetta útflutningsgjald, sem frv. fjallar um, rennur í ríkissjóð, en er svo aftur greitt þaðan sem framlag til lánsstofnunar bænda, Búnaðarbankans. Hér er því í raun og veru um það að ræða, að taka úr einum vasanum og láta í hinn.
Ég geng ekki að því gruflandi, að það verður kastað á mig steini fyrir að mæla á móti þessu frv., en ég læt mér það í léttu rúmi liggja. Við heyrðum hér í gær tvo bændaöldunga og héraðshöfðingja rísa upp og mótmæla þessu frv. fyrir það, að það gengi of nærri metnaði bændastéttarinnar. Ég minnist þess og að hafa heyrt, að einn af bændahöfðingjum Suðurlands hafi svarað fyrirspurn frá hærri stöðum um skuldir manna í hans hreppi á þá leið, að hann gæfi engar upplýsingar, hans sveit hefði hingað til komizt af án styrks og á sama hátt ætlaði hún að reyna að bjargast af hér eftir. Ég minnist þess enn, að á fundi, sem ég var staddur á norður í Húnavatnssýslu, var stungið upp á því, að ríkissjóður greiddi verðupphót á kjöti, svo sem 10 au. á kg. En þá reis upp bóndi úr Vatnsdal, sem talinn er þó einn af róttækustu bændum sýslunnar, og sagðist hafa þann metnað fyrir sig og sína stétt, að slíkan styrk vildi hann ekki þiggja, og svo einkennilega vildi til, að þessi maður var einmitt mágur hv. þm. V.-Húnv. Í yfirlýsingum allra þessara manna kemur fram konungurinn í íslenzka bóndanum, hin frjálsa mannslund íslenzka bóndans, sem varðveitzt hefir í þúsund ár, þrátt fyrir eldgos og harðindi, hallæri og drepsóttir. Þetta allt hefir hún getað staðizt. En ég óttast, að ef farið er að bændastéttinni eins og gert er í þessu frv., þá standist hún ekki lófastrokur atkvæðaveiðaranna, en láti flekkast til þess að þiggja styrki, beina eða óbeina, að nauðsynjalausu, og glati við það metnaði sínum. En geri hún það, er framtíð hennar í veði. Þess vegna má það aldrei verða.