19.05.1933
Neðri deild: 78. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í C-deild Alþingistíðinda. (3712)
36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum
Guðbrandur Ísberg:
Ég vildi aðeins leiðrétta það, sem mér virtist koma fram í ræðu hv. 2. þm. Rang., að ég hefði talað um bændur sem ölmusustétt. Þetta er rangt, en ég vil koma í veg fyrir, að nokkurn tíma verði hægt að tala um þá þannig.
Ég þarf ekki mörgu að svara hv. 1. þm. Skagf. Hann lagði aðaláherzluna á það, að útflutningsgjaldið á kjöti væri ósanngjarnt og miðaði vitanlega við það, að kjötframleiðslan bæri sig ekki. En sé miðað við annað útflutningsgjald, þá verður svipað uppi á teningnum, því ég veit ekki betur en að sjávarútvegurinn sé einnig rekinn með tapi, og þá er gjaldið á honum líka ósanngjarnt. Og að auki kemur það, sem hæstv. dómsmrh. benti á, að gjaldið, sem bændurnir greiða, rennur til þeirra sjálfra, en svo er ekki um gjaldið á sjávarafurðum.
Þá sagði sami hv. þm., að ég hefði komizt í mótsögn við sjálfan mig, vegna þess að ég teldi, að bændur mundu ekki vilja þiggja styrkinn. Það er líka skoðun mín, að svo sé um marga bændur, en því miður eru þeir bændur til, sem eru svo lítilþægir, að þeir mundu taka við þessu tveim höndum. Og á þann hátt getur þetta orðið kosningabeita. Annars skal ég ekki fara frekar út í þetta. Hv. þm. lét þau orð falla, að þessar umr. hefðu hlaupið í taugarnar á mér. Það má vel vera. Einmitt af því að ég er alinn upp í sveit og hefi sjálfur verið bóndi og á e. t. v. eftir að verða það, er mér það tilfinningamál, að eigi verði gengið of nærri metnaði íslenzkra bænda, með því að leysa þá eina af framleiðendum landsins undan útflutningsgjaldi, sem þó rennur aftur til þeirra sjálfra og er eigi hærra en svo, að viðurkennt er af öllum, að því er virðist, að það skipti engu með tilliti til afkomu bændanna, hvort þessi fríðindi verði samþ. þeim til handa eða ekki.