22.05.1933
Efri deild: 78. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (372)

1. mál, fjárlög 1934

Jón Þorláksson:

Bæði hæstv. forsrh. og hæstv. atvmrh. hafa minnzt á þá aðfinnslu mína, að fyrir hafi farizt, að stj. legði fyrir þingið frv. til 1. um ákvörðun tölu opinberra starfsmanna. Þeir vísuðu til þess, að samin hafi verið skrá yfir þessa menn og síðan fengin fjvn. í hendur. Atvmrh. bætti því við, að það hefði verið kosin undirn., og að í henni væri ágætur sparnaðarmaður úr Sjálfstæðisflokknum, og sagði síðan, að stj. vænti bendinga frá þessari n. og mundi taka þær til athugunar. Þetta kalla ég, að hæstv. stj. gefi forustuna og frumkvæðið úr sínum höndum á því sviði, þar sem til var ætlazt og er samkv. hlutarins eðli, að forustan og frumkvæðið sé hjá stjórn landsins, ef nokkru á um að þoka. En það gleður mig náttúrlega að heyra, að það er viðurkennt orðið, að nauðsynlegt sé að vinna að þessu máli.

Ég ætla ekki að fara frekar inn á ræðu hæstv. forsrh., en verð að minnast fáeinum orðum á það, sem hæstv. atvmrh. var að reyna að færa fram til varnar gegn þeim aðfinnslum, sem ég hefi borið fram út af yfirstjórn hans á útvarpinu. Hann færði sér til málsbóta það, að útgjöld hefðu verið nokkuð lækkuð, og að það væri þegar byrjað á að fækka starfsmönnum. Ég skal veita mína viðurkenningu fyrir þessar upplýsingar, það sem þær ná, og þakka fyrir það, að það er gefið vilyrði fyrir því, að enn verði haldið áfram. Þess er áreiðanlega þörf. En ég kalla ekki, að hæstv. ráðh. hafi fært fram vörn gegn því, sem ég bar fram og gerði að aðfinnsluefni viðvíkjandi misbrúkun útvarpsstjórans á opinberu fé. Hann sagði, að ég hefði aðeins verið fjmrh., og þess vegna ekki séð þá kostnaðarreikninga, sem koma úr ýmsum áttum, og þyrfti að færa niður. En ég hefi gert ýmislegt annað, m. a. um nokkur ár veitt forstöðu einni af stærstu starfrækslugreinum landsins, vegamálunum, og mér er vel kunnugt, hvaða venja ríkti þá hjá embættismönnum og starfsmönnum landsins í þessum greinum allt fram til ársins 1927. Og það var ekki siður þá, að menn sendu hærri kostnaðarreikninga heldur en það, sem réttmætt var, enda höfðu menn ekki vanizt við það, að ráðh. eða aðrir ætluðu sér meiri kostnað af opinberu fé heldur en nauðsynlegt var.

Um úrskurðartill. yfirskoðunarmanna landsreikningsins út af þessum misfellum sagði hæstv. ráðh. það, að endurskoðandi Sjálfstæðisflokksins hefði skrifað undir till. um þetta, að við svo búið mætti standa, að því er snertir úrskurð stjórnarráðsins um þessar greiðslur útvarpsstjórans af opinberu fé. En þetta er ekki rétt með farið. Úrskurðartill. er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Yfirskoðunarmenn geta eftir atvikum fallizt á úrskurði stjórnarráðsins um endurgreiðslur af hálfu útvarpsstjóra, en eru óbundnir um frekari aðgerðir út af þeim málum. Um ferðakostnað útvarpsstjórans, sem ekki er frekar gerð grein fyrir, telja yfirskoðunarmenn, að gera hefði átt aths. til viðvörunar. Þá virðist sjálfsagt, að andvirði útvarpstækjanna séu innheimt. Um kostnaðinn við útvarpið framvegis verður Alþingi að ákveða. Athugasemdin er því til viðvörunar framvegis og vísað til aðgerða Alþingis“.

Ég veit ekki, hvort hæstv. atvmrh., sem er tiltölulega ungur og óvanur í þessari starfsgrein, er ljóst, hve feikilega mikill munur er á þessari úrskurðartill. „til viðvörunar framvegis“ og að „vísa til aðgerða Alþingis“, eða venjulegri úrskurðartill., að við svo búið megi standa. Hér er ljóst, að yfirskoðunarmenn hafa áskilið sér og Alþingi fullan rétt til að eiga óbundin atkvæði um það, sem þeir kalla „frekari aðgerðir út af þessu máli“.

Ég verð svo að eyða síðustu mínútunum til að víkja fáeinum orðum að hv. 5. landsk., þó að það sé reyndar varla gustuk, eftir að hæstv. dómsmrh. er búinn að tæta svo í sundur allt, sem hann flutti fram. Hv. 5. landsk. var að reyna að afsaka framferði útvarpsstjórans með því að minna á það, hversu ágætt tæki útvarpið er, og hversu annt menn gerðu sér um að njóta útvarpsins. En þar fer hann alveg villur vegar, ef hann heldur, að núverandi útvarpsstjóri eigi nokkuð af heiðrinum fyrir það, að hafa komið þessu menningartæki á það tiltölulega háa verklega stig, sem það er nú á. Það verk hafa allt aðrir menn unnið. Hitt er eðlilegt, að nú og ávallt þegar talað er um þess konar misfellur, sem útvarpsstjórinn hefir gert sig sekan í, að hann telji sér skylt að rísa upp til svars, því að fordæmið, sem hefir leitt útvarpsstjórann út á glapstigu, er gefið af hv. 5. landsk., þegar hann var í ráðherrasæti. En þeir, sem vilja hafa heiðarleik í opinberu lífi, mega ekki þreytast á því að minna á það, að allt framferði hv. 5. landsk. um misbrúkun á bílum, skipum og opinberum eignum, á að vera til viðvörunar í þjóðfélaginu, en engum til eftirbreytni. Áheyrendur gátu ekki varizt því að svara með hlátri, þegar hv. 5. landsk. var að bera hólið á sjálfan sig og sín verk. Þó mun ekki hafa verið veitt eftirtekt öllu, sem hann sagði. Hann sagði m. a., að þeir, sem drykkju whisky, væru aðallega hinir „betri borgarar“. Ég þekki mann, sem vill láta telja sig með betri borgurum, og aldrei vill drekka whisky, ef hann fær eitthvað annað. Þetta minnir á, þegar hv. þm. var að hvetja menn til að drekka vín eins og menn drekka kaffi (JónasJ: Ekki whisky!).

Þá gat hann ekki stillt sig um, sem ekki er von, að senda hnútur til þess æskulýðs, sem í ýmsum flokkum og í ýmsum myndum rís upp til að skipa sér með hreinum hugsunum undir fána þjóðarinnar og bera þar fram merki þess nýja tíma, sem ekki ætlar sér að gerast þátttakandi né þolandi hinna miklu brota á opinberu velsæmi, sem hv. 5. landsk. er fyrsti forvígismaður að í þessu landi. Um þennan æskulýð hefir hv. 5. landsk. enga röksemd fram að bera, en slengir á hann þeim smánarorðum, að hann sé fáfróður og illa menntaður. En hv. 5. landsk. hefir átt drjúgan þátt í að búa þessum æskulýð menntunarskilyrði, að mestu leyti þau fimm ár, sem hann var ráðh. En niðurstaðan og árangurinn er nú það, að æskulýður landsins hefir snúið við honum bakinu, af því að æskan hefir andstyggð á öllu hans framferði. Og hv. 5. landsk. þýðir ekkert að ætla að bera sem skjöld þau ókvæðisorð, sem hann hreytti til æskulýðsins. Framtíðin hefir yfirgefið hann.