22.04.1933
Neðri deild: 54. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2331 í B-deild Alþingistíðinda. (3722)

93. mál, ábúðarlög

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Þetta frv. hefir legið fyrir hverju þingi síðan 1929. Hefir það nú tekið allmiklum breyt. frá því það var fyrst lagt fram, sérstaklega á síðasta þingi, enda hafa landbn. beggja d. lagt í frv. mikla vinnu. Frá því í fyrra hafa enn verið gerðar nokkrar breyt. á frv., og er það nú lagt fyrir þingið sem stjfrv., með því að ekki þótti lengur mega dragast að gera endurbætur á þeirri ábúðarlöggjöf, sem við höfum búið við frá því 1884.

Það mun láta nærri, að leigujarðir á öllu landinu séu um 2800, að meðtöldum þjóðjörðum, kirkjujörðum og kristfjárjörðum. Er augljóst, hve miklu skiptir allan þann fjölda, sem á þessum jörðum býr, hver löggjöf er um leiguábúð á hverjum tíma. Í þessu frv., sem nú hefir gengið í gegnum aðra d. og tekið þar smábreyt., er þeirri stefnu fylgt að fara nokkuð bil beggja milli þeirra krafna, sem fram hafa komið frá báðum hliðum. Það hefir verið reynt að stefna í sanngjarnari átt og mýkri í framkvæmd gagnvart báðum aðilum, jarðeiganda og leiguliða.

Af einstökum breyt., sem teknar voru upp í stjfrv., get ég m. a. bent á þá höfuðbreyt., að samkv. þessu frv. eru ákvæði þess bindandi, svo að ekki verður smogið framhjá þeim með samningi, er fari í aðra átt, nema þar sem það er sérstaklega tekið fram í frv., að fara megi eftir samningi eða samkomulagi beggja aðilja. En eins og frv. var afgr. frá Nd. í fyrra, litu margir lögfræðingar svo á, að vafasamt væri, hvort landsdrottnar gætu ekki samið sig frá þeim skyldum, sem lögin áttu að leggja þeim á herðar, með ákvæðum byggingarbréfa. Á meðal þeirra lögfræðinga, er svo litu á, má telja sjálfan háskólakennarann í ábúðarlöggjöf.

Þá voru og gerð nokkuð mildari ákvæði gagnvart leiguliðum, þegar svo stendur á, að landsdrottinn heimtar, að ábúandi kaupi ábýlisjörð sína. Í frv., eins og það var afgr. frá þessari hv. d. í fyrra, var ekki undir slíkum kringumstæðum gert ráð fyrir lengri gjaldfresti á kaupverðinu en einu ári. En hér er gert ráð fyrir, að landsdrottinn veiti leiguliða allt að fjögurra ára gjaldfrest á þeim hluta kaupverðsins, sem ekki er veðhundinn, og kaupandi taki við veðskuldum, sem á jörðinni hvíla.

Í þessum tveim atriðum, sem ég hefi nú bent á, og ýmsum fleirum er reynt að taka tillit til sanngjarnra krafna leiguliða. Aftur á móti er nokkuð dregið úr þeim kröfum, sem leiguliðar gátu gert samkv. frv. eins og það var afgr. frá hv. d. á seinasta þingi um húsabætur, þ. e. a. s., nokkuð dregið úr húsabótaskyldu landsdrottna. Hér er hnigið að því ráði að miða húsabótaskylduna við fasteignamatsverð á landi hverrar jarðar, þannig að landsdrottni sé skylt að leggja til nothæf hús til búrekstrar á jörðinni, er nemi 2/3 af landverði hennar, hvorttveggja að fasteignamati. Vil ég í sambandi við það minna á, að í flestum tilfellum er fasteignamatsverð húsa mjög miklu lægra en kostnaðarverð þeirra. Eftir athugun, sem ég hefi gert á hinu nýja fasteignamati, nær matsverð húsa oft ekki nema einum þriðja af kostnaðarverði þeirra. Þetta vil ég biðja menn að athuga, þegar þeir líta á ákvæði frv. um húsabótaskylduna. Fleiri atriði í sambandi við þetta mundi ég óska eftir að eiga tal um við þá hv. n., sem málið fær væntanlega til athugunar, ef því verður vísað til 2. umr.

Það hefir ekki þótt fært í þetta sinn að leggja til, að frv. kæmi að öllu leyti til framkvæmda nú þegar, þó það yrði að lögum. Veldur því það kreppuástand, sem í landinu er, og þeir gjaldeyriserfiðleikar, sem af því mundu leiða ef byggingar væru mjög auknar á þessum árum. Þess vegna er lagt til, að húsabótaskyldan komi ekki til framkvæmda fyrr en eftir 5 ár frá því að þessi l. öðlast gildi. En ég vil benda á, að þrátt fyrir þetta mundi frv. hafa allmikil áhrif þegar í stað, ef að lögum yrði. Landsdrottnar mundu sjá, að húsabótaskyldan fellur hvort sem er á þá eftir 5 ár, og mundu þeir því ekki sjá sér sérstakan hag í því að þybbast við sanngjörnum kröfum leiguliða um húsabætur.

Ég geri ráð fyrir, að hv. þdm. séu búnir að kynna sér þetta frv., og skal því ekki fara út í fleiri einstök atriði, en vil leyfa mér að óska þess, að málinu verði vísað, að lokinni þessari umr., til 2. umr. og hv. landbn.