19.05.1933
Neðri deild: 78. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í C-deild Alþingistíðinda. (3741)
36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum
Bjarni Ásgeirsson:
Mér finnst óþarflega mikill hiti kominn í þessar umr., því þetta er sannarlega ekki stórmál, og mér finnst það leiðinlegt mál og ég get ekki fylgt því. Til þess liggja ekki önnur rök en þau, sem búið er fram að bera af ýmsum andstæðingum frv.
Fyrst og fremst álít ég þetta mál ákaflega lítils virði fyrir útflytjendur landbúnaðarafurða, þar sem um er að ræða ca. 10 aura gjald á kjötkropp, en aftur á móti vel til þess fallið að koma inn illu blóði hjá öðrum stéttum þjóðfélagsins, sem greiða verða samskonar gjald af sínum vörum. Og ég er hræddur um, að það skapi kröfu, og það eðlilega kröfu um að þau fái líka niðurfelld sín gjöld, sem ríkissjóður má ekki við að missa.
Í öðru lagi vil ég benda á það, sem hæstv. dómsmrh. hefir tekið fram, að með samþykkt l. um ræktunarsjóð eru í gildi samningar, sem að nokkru leyti yrðu rofnir með niðurfellingu þessa gjalds, þar sem gjald þetta var hækkað almennt með tilliti til þess, að ákveðinn hluti rynni í ræktunarsjóð, sem er stofnun, sem starfar fyrir íslenzka bændur. Meðan 1. þessi eru í gildi og meðan ríkissjóður heldur áfram að greiða ákveðna greiðslu til ræktunarsjóðs, þá er ósæmandi, að landbúnaðurinn, sem nýtur þessa gjalds, kippi að sér hendinni með að greiða þetta tiltölulega litla gjald, sem frá honum rennur í þennan sameiginlega sjóð.
Eina röksemdin, sem mér virðist takandi til greina í þessu máli, er sú, sem fram kom hjá hv. l. þm. Skagf., að útflutningsgjaldið í heild sinni kæmi ójafnt niður á framleiðslu bænda. Úr því tel ég sjálfsagt að bæta með því að breyta gjaldinu þannig, að því verði á einn eða annan hátt jafnað niður á afurðir bænda í heild, hvort sem þær eru fluttar út eða ekki, t. d. með því að taka það sem fasteignaskatt. En mér finnst, að við getum ekki kippt af okkur gjaldinu fyrr en búið er að leiðrétta þetta.
Út af þessu vildi ég bera fram svofellda rökstudda dagskrá:
Jafnframt því að ríkisstj. er falið að undirbúa fyrir næsta þing frv. til l., er tryggi það, að gjald frá landbúnaðinum, sem svari til útflutningsgjalds þess, sem nú er af landbúnaðarafurðum, kæmi réttlátar niður á framleiðslu búnaðarins en nú er, og í trausti þess, að Alþingi geri sitt til að tryggja raunverulega afkomu bænda á þessum örðugleikatímum, tekur d. fyrir næsta mál á dagskrá.