29.05.1933
Neðri deild: 86. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2431 í B-deild Alþingistíðinda. (3780)

93. mál, ábúðarlög

Frsm. minni hl. (Steingrímur Steinþórsson):

Það eru aðeins örfá orð út af því, sem hv. 1. þm. S.-M. sagði nú síðast. Og vil ég þá fyrst víkja að aths. hans út af brtt. okkar við 18. gr. frv., þar sem hann hélt því fram, að við vildum ekki láta dómkvadda menn meta jörð, ef landsdrottinn býður leiguliða hana til kaups. En það er heimilt samkv. lögunum. (SvÓ: Þjóðjarðasölulögunum?). Nei, það eru ákvæði í 54. gr. þessara laga, sem heimila það, og samkv. þeim getur hvor aðilja, sem hlut á að máli og ekki vill hlíta úttekt eða mati úttektarmanna samkv. lögum þessum innan tveggja vikna, krafizt yfirúttektar eða yfirmats. Og þá dómkveður sýslumaður menn til yfirmats. Þess vegna sáum við ekki ástæðu til að gera slíka breyt. við 18. gr. frv. Það er alltaf opin leið fyrir landsdrottinn að skjóta úrskurðum og mati úttektarmanna til þessa dóms, ef honum þykir það ekki hæfilegt.

Út af því, sem hv. 1. þm. S.-M. sagði um leiguliðabótina, hygg ég, að honum sé farin að fatast reikningslistin; hann komst að þeirri niðurstöðu, að það mundi taka 200—400 ár að endurgreiða byggingarkostnað steinhúsanna með þeirri leiguliðabót, sem við hv. 1. þm. Árn. leggjum til í brtt. okkar, að hún verði allt að ½%, en sannleikurinn er sá, að það tekur ekki nema tæp 60 ár, ef leiguliðabótin ávaxtast með 4½% , og að því er snertir hús úr öðru efni, torfi og timbri, þá endurgreiðist kostnaðarverð þeirra á 38 árum, ef reiknað er með 1% leiguliðauppbót og 4½% vöxtum, því vitanlega reiknum við með því, að hún ávaxtist á þessu árabili. — Mér finnst, að hv. 1. þm. S.-M. hafi fatazt svo herfilega í þessum útreikningum sínum, þar sem hann telur, að það taki 200—400 ár að endurgreiða kostnaðarverð húsanna með leiguliðauppbót, að ég verð að segja, að ef honum hefir fatazt svo hrapallega um hin önnur atriði frv., sem hann er óánægður með, eins og leiguliðauppbótina, þá undrar mig ekki, þó hann hafi látið ófriðlega í andstöðu sinni gegn frv.