27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2433 í B-deild Alþingistíðinda. (3798)

205. mál, ráðstafanir vegna viðskiptasamnings við bresku stjórnina

Frsm. (Bergur Jónsson):

Frv. þetta er flutt af allshn. Nd. eftir ósk hæstv. forsrh. Tilefnið er, eins og kunnugt er, ákvæði brezku samninganna, þar sem takmarkaður er nokkuð innflutningur á kjöti og fiski til Bretlands.

Í frv. er ákveðið, að ríkisstj. veitist heimild til, ef þörf krefur, að ákveða með reglugerð útflutningsmagn á kjöti og fiski og hvernig útflutningi skuli hagað.

Sömuleiðis er það kunnugt, að eftir brezku samningunum erum við skyldaðir til að kaupa í Bretlandi ákveðinn hluta af þeim kolum, sem við kaupum til landsins. Vegna þessarar skyldu, þá er í 3. gr. frv. ríkisstj. heimilað að hafa eftirlit með innflutningi á kolum frá öðrum löndum heldur en Bretlandi, ef þörf krefur.