12.05.1933
Neðri deild: 72. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í C-deild Alþingistíðinda. (3829)

169. mál, einkennisbúninga og önnur einkenni

Jóhann Jósefsson:

Ég vil taka undir andmæli hv. þm. Barð. gegn þessu frv. Eins og kunnugt er, erum við báðir á þeirri skoðun, að ekki sé þörf slíkra lagaákvæða sem hér er um að ræða og að þau yrðu á engan hátt til bóta.

Sócialistar hér í hv. d. hafa nú flutt brtt. við frv., á þskj. 635, um að fyrirbjóða þeim mönnum að nota íslenzka fánann, sem hafa ákveðnar stjórnmálaskoðanir. Hvað skyldu það vera margir menn á landi hér, sem ekki má telja, að fylgi ákveðnum stjórnmálaskoðunum? Með þessari till. má segja, að sett sé met í ófyrirleitni. Aldrei hefi ég orðið þess var, að nokkur flokkur eða einstakur maður hafi flutt eins ósvífna till. eins og hér er um að ræða. Þessir menn, sem aldrei hafa hreyft sinn minnsta fingur til þess að auka virðingu hins íslenzka þjóðernis né hins íslenzka fána og nota hvert tækifæri til þess að veifa hinum útlendu fánum sócialista og kommúnista, en aldrei sjást nota fána þjóðar sinnar, þeir vilja nú fá Alþingi Íslendinga til þess að banna landsins börnum að ganga undir sínum eigin þjóðfána. Það fer að vísu ekkert illa saman við aðra opinbera framkomu hinna íslenzku sócialista að bera slíkt fram á þingi. En það er líka þeim einum mögulegt og við hæfi þeirra einna, sem prédika forsorgun fyrir þeim, sem fátækir eru, en nota jafnframt aðstöðu sína í stjórnmálum til þess að auðga sjálfa sig.

Þá var hv. 2. þm. Reykv. eitthvað að harma það, að íslenzki fáninn nyti ekki þeirrar virðingar, sem hann ætti skilið, ef þeim, sem hafa ákveðna stjórnmálaskoðun, væri ekki bannað að nota hann. Það er ekki furða, þó hv. þm. taki sárt til íslenzka fánans. Hann getur eflaust bent á mörg dæmi þess, að hann hafi unnið að því að efla virðingu þessa tákns þjóðernisins! Ég hélt nú reyndar, að það væri annar fáni, sem stæði honum nær, rauði fáninn. Það er sama dulan, sem hundtyrkinn bar í fararbroddi þegar hann var að ræna Ísland hér á árunum. Ég get vel skilið, að hv. 2. þm. Reykv. vilji fá einkarétt til að nota það merki.

Hv. þm. sagði, að sjálfstæðismenn hefðu misnotað íslenzka fánann. Ég veit ekki, hvað hann á við með því. Ég veit ekki annað en það sé almenn og viðurkennd regla hjá hverri þjóð, að landsins eigin börn megi nota þjóðfánann á opinberum stöðum við hvaða tækifæri sem er. Það er þó ein frændþjóð okkar, sem ekki má nota sinn eigin fána. Hann er að vísu ekki alþjóðlega viðurkenndur sem þjóðfáni. Danir hafa sett það met í hyggindaleysi í sinni utanríkispólitík að amast við því, að Færeyingar noti sinn eigin fána heima fyrir. Það er í fótspor þeirra, sem hv. 2. þm. Reykv. vill nú feta með því að banna okkur að nota íslenzka fánann á mannfundum og götum bæjarins.

Ég býst ekki við, að það sé ástæða til að eyða mörgum orðum um jafnfáránlega till. og hér er fram komin. Ég skil ekki í, að nokkur hv. þm. fái sig til að leggja henni lið, aðrir en þeir, sem hana hafa flutt. En svo mikið er víst, að þó þingið væri þannig samansett, að það féllist á þá till. hv. 2. þm. Reykv. að banna Íslendingum að nota fána sinn, þá mundi verða erfitt að koma í veg fyrir, að ýms félög, jafnvel þó stjórnmálalegs eðlis væru, notuðu fánann eftir sem áður, ef þeim sýndist svo. Ég tala nú ekki um þegar bannið kæmi frá þeim flokki manna, sem alla sína stjórnmálatíð hafa lifað á erlendu sníkjufé og notað það m. a. við kosningar hér heima, - frá hinum íslenzku sócialistum, þeim flokki, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði fyrir skömmu á fundi í Vestmannaeyjum, að hefði sama markmið og kommúnistar, en vildu bara fara aðra leið. Vona ég, að hv. þm. minnist þessara orða sinna. Það er vonlaust, að sá hluti þjóðarinnar, sem annars er á annari skoðun en hv. 2. þm. Reykv. og hans nótar, mundi beygja sig fyrir slíku banni, þó einhverjir væru svo vitlausir að samþ. það.