12.05.1933
Neðri deild: 72. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (3833)

169. mál, einkennisbúninga og önnur einkenni

Hannes Jónsson:

Margt er sér til gamans gert, má segja þegar slík frv. eru flutt á Alþingi og slíkar ræður haldnar sem nú. Það er eins og menn séu svo hræddir við þessar dulur, sem stjórnmálaflokkarnir skreyta sig með, að þeir óttist þær miklu meira en mennina sjálfa.

Ég er hræddur um, að það yrði nokkuð erfitt að framkvæma sum ákvæðin í þessu frv. Ég hefi ekki betur séð en sumir kommúnistar hér séu farnir að ganga í bláum vinnufötum sem einkennisbúningi, og mér finnst nokkuð langt gengið, ef fara ætti að klæða greyin úr þeim. Þjóðernissinnar svokallaðir þyrftu ekki annað en fara að ganga í brúnum vinnufötum. Við skulum segja, að þeir yrðu klæddir úr þeim. En þar sem gera má ráð fyrir, að þeir séu svo þjóðlega sinnaðir, að þeir fari að ganga í íslenzkum prjónanærfötum, þá mætti þekkja þá úr eftir sem áður. Það yrði þá að rýja skinnin alveg, en það yrði út af fyrir sig einkenni líka; svo ég veit ekki, hvernig ætti að fara að þessu.

Annars er sumt í þeirri brtt., sem fram er komin, þess eðlis, að það mætti vel athuga. T. d. það, að ekki megi setja sérstök merki í íslenzka fánann. Það kann ég ekki við. En þó stöngin, sem fáninn er borinn á, sé með einhverjum einkennum, finnst mér það ekki vera stórhneykslanlegt. Ég hefði t. d. ekkert við það að athuga, þó íslenzki fáninn væri borinn á rauðri stöng.

Hér er ekki um neitt alvörumál að ræða, enda mun það ekki flutt af mikilli alvöru. Og það er ekki rétt að tefja þingstörfin með slíku, því nóg liggur fyrir af alvörumálum til úrlausnar.