12.05.1933
Neðri deild: 72. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í C-deild Alþingistíðinda. (3841)

169. mál, einkennisbúninga og önnur einkenni

Jóhann Jósefsson:

Fyrirspurn þeirri, sem ég beindi til hv. 1. þm. Skagf., var eiginlega ekki stefnt til hv. 2. þm. Reykv., þó hann taki hana til sín. (HV: Mér var sagt, að hún hefði verið til mín). Hv. 1. þm. Skagf. hefir nú svarað minni fyrirspurn, en það er næmt móðureyrað hjá hv. 2. þm. Reykv., og það lítur út fyrir, að þar hafi sök bitið sekan. Mér er ekki kunnugt um það, hve mikinn þátt þessi hv. þm. hefir átt í atburðunum 9. nóv., en hinsvegar hefi ég heyrt, að hann hafi tekið mjög raunverulegan þátt í þeim, og þá er nú sennilegt, að hann geti ekki verið óhlutdrægur dómari um þá hluti, sem þá gerðust. Hv. 2. þm. Reykv. benti á það ráð til þess að komast hjá alvarlegum afleiðingum, þegar verkamenn gerðu uppþot, að hafa lögregluna ekki einkennisbúna. Þegar hann gengst fyrir óeirðum, þá vill hann enga lögreglu hafa. Annars benti ég á það við 1. umr., hvaða spor þyrfti að stíga til þess að koma í veg fyrir það, að vandræði hlytust af upphlaupum kommúnista, en það er að auka lögregluna. Flokkur hv. 2. þm. Reykv. er nú búinn að prédika það í mörg ár, að það eigi að afgera málin með handaflinu, ef það tekst ekki á annan hátt. Afleiðingin af slíkum kenningum hlýtur að verða sú, þegar varnarlið þjóðfélagsins skipar sér í andstöðu gegn þeirri aðferð, að þá hlýtur að verða árekstur. Þegar slíkar uppreisnarkenningar verða að veruleika, þá er það fyrsta sporið fyrir ríkisvaldið að skapa sér aðstöðu til þess að halda uppreisnarmönnunum í skefjum. Bregðist ríkisvaldið þeirri skyldu sinni, þá þýðir það ekkert að banna einkennisbúninga. Þetta vil ég minna hv. flm. frv. á, sem ég efa ekki, að flytji það í góðum tilgangi.

Hv. 2. þm. Reykv. segir, að ég sé einn þeirra, sem séu í ráðum með þeim, sem stofnað hafa til hinnar nýju þjóðernishreyfingar. Ég skal ekki finna að því, þó ég sé bendlaður við þessa hreyfingu, eða þó sagt sé, að þeir, sem fyrir henni standa, leiti heldur til mín en hv. þm., sem kunnugt er, að fyrirlítur allt, sem þjóðlegt er. Það er alkunnugt, að hann er sjálfur aðalfyrirsvarsmaður útlendrar hreyfingar hér á landi, og því er þess tæplega að vænta, að þeir, sem hafa þá stefnuskrá að berjast fyrir, að landið skuli vera eign og til afnota fyrir landsins börn, leiti til hans ráða í sínum málum.

Hitt, sem hv. þm. var að beina til mín, að ég stæði í sambandi við þýzku stj., kemur að sjálfsögðu ekkert þessu máli við, enda er það samband ekki annað en það, að ég er ræðismaður þeirrar þjóðar í einum hluta landsins. Það ræðismannsstarf hefi ég haft í mörg ár, án þess hv. þm. hafi fundið neitt við það að athuga. Ég hefi verið það líka meðan jafnaðarmenn stjórnuðu í Þýzkalandi. Þetta kemur því alls ekkert við því máli, er hér um ræðir.

Að síðustu vil ég taka undir það með hv. þm. V.-Húnv., að mér finnst eins og honum frv. þetta svo ómerkilegt, að ekki eigi að láta það halda áfram, heldur að fella það strax.