27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í B-deild Alþingistíðinda. (385)

1. mál, fjárlög 1934

Sveinbjörn Högnason:

Ég vil vænta, að hæstv. forseti verði við þessari ósk um, að taka málið út af dagskrá, þar sem þeir munu vera fleiri en hv. þm. V.-Húnv., sem ekki hafa haft tækifæri til þess að bera fram brtt. við frv. og rannsaka betur, hvernig frá frv. hefir verið gengið í hv. Ed. Ég verð að segja, að ég álít, að þessari hv. d. væri það hreint og beint til vansæmdar, ef hún léti frv. ganga í gegnum d. án þess að það sé athugað betur en gert hefir verið, þegar þessar upplýsingar eru komnar frá hv. frsm. fjvn. um þá hækkun, sem gerð hefir verið í hv. Ed. Ef á að ganga inn á þá braut, að hér eigi alltaf að afgreiða þetta fjárlagafrv. með slíkum hætti, þegar það kemur frá hv. Ed. og við því verður ekki hreyft, þá verða hv. dm. að gæta að því, að fjárveitingarvaldið er hreint og beint tekið úr höndum þessarar hv. d. og lagt í hendur Ed., enda ber sú meðferð það greinilega með sér, sem hefir orðið á frv. í þetta sinn. Þessi hv. d. hafði hækkað útgjöldin um ca. 60 þús. kr. Hv. Ed. hefir tekið út fjöldann af því, sem sett hafði verið inn hér í hv. Nd. — af þessum einu 60 þús. kr. —, en þar að auki er bætt við útgjöldin í hv. Ed. 460 þús. kr. M. ö. o. það er um ½ milljón, sem þar er bætt inn, en tekið út mikið af því smáræði, sem hér hafði verið bætt við í þessari hv. d. Ég skil ekki skaplyndi þeirra hv. þdm., sem ætla að sætta sig við slíka afgreiðslu og samþ. allt, sem hv. Ed. hefir gert, umhugsunar- og athugasemdalaust! Ég vil fyrir mitt leyti eindregið taka undir þá áskorun til hæstv. forseta, að hann taki málið út af dagskrá að þessu sinni, til þess að mér gefist tækifæri til að bera fram brtt. við frv. Ég hefi þegar athugað og undirbúið brtt., sem ég óska að koma fram hér í d. áður en frá frv. er gengið, og vil ég fastlega vonast til þess, að hæstv. forseti sjái sér fært að verða við beiðni okkar.