12.05.1933
Neðri deild: 72. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í C-deild Alþingistíðinda. (3884)

169. mál, einkennisbúninga og önnur einkenni

Héðinn Valdimarsson:

Það er nú enginn okkar formaður flokksins hér í d., en ég geri ráð fyrir, að hv. þm. hafi verið að beina fyrirspurninni til mín. Ég skal svara því, ef ég fæ að vita, hvort það verður tekið gilt framvegis, ef Alþýðuflokkurinn segir fyrirfram, að hann sé mótfallinn einhverjum l., þá verði þau ekki samþ., en hinsvegar, ef hann óskar að l. verði samþ., þá verði það gert.