05.05.1933
Efri deild: 64. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í C-deild Alþingistíðinda. (3899)

42. mál, eftirlit með sparisjóðum

Jakob Möller [óyfirl.]:

Það voru nokkur orð, sem hv. 5. landsk. beindi að því, hvernig starf eftirlitsmannsins með bönkum og sparisjóðum hefir verið rækt, er valda því, að ég kvaddi mér hljóðs.

Hv. þm. lét svo um mælt, að heppilegast væri, að eftirlitið með sparisjóðunum væri framkvæmt einu sinni á ári. Mun þó hvergi ætlazt til þess, að slíkt eftirlit sé framkvæmt árlega. Í Danmörku er sparisjóðaeftirlitið t. d. framkvæmt þannig, að sparisjóðirnir eru skoðaðir á 5 ára fresti, og munu þó ekki allir sjóðir þar hafa verið skoðaðir enn, svo að þegar ég var í Danmörku og tók þátt í skoðun nokkurra sjóða þar, 1924-1925, hafði starfsmaður sparisjóðaeftirlitsins, sem með mér var, ekki séð suma sjóðina, og höfðu þeir aldrei verið skoðaðir áður. Og sama máli gegnir um bankana. Kemur engum til hugar, að þá eigi að skoða árlega. Þó hefi ég orðið þess var, að sumir þm. álíta, og nokkrir fleiri, að eftirlitsmaðurinn eigi að hafa jafnvel daglegt eftirlit með bönkum og sparisjóðum, en eins og hver maður sér, þá er þetta ómögulegt. Hér eru um 50 sparisjóðir, 3 aðalbankar og ótal útibú frá þeim víðsvegar úti um land. Liggur það í þessari aðstöðu, að ekki er hægt að framkvæma slíkt daglegt eftirlit. Hinsvegar hefi ég gert till. um reglugerð fyrir þetta starf, sem liggja í stjórnarráðinu, þar sem gert er ráð fyrir, að eftirlitið sé framkvæmt eins og í öðrum löndum, og hefði hv. 5. landsk. getað kynnt sér þetta meðan hann var ráðh., ef hann hefði haft nokkra löngun til að dæma um þetta starf af viti og sanngirni.

Hv. 5. landsk. vildi lesa hnútur til mín út úr bréfinu frá bankaráði Landsbankans, þar sem segir, að ég hafi ekki framkvæmt þar neitt eftirlit 2-3 síðustu árin, en ég skal segja hv. þm. það, að ég skil þetta ekki sem hnútur. Það er ekki venja, að bankaeftirlitið skoði bankann nema á fleiri ára fresti, svo að þetta er í alla staði eðlilegt. Annað mál er það, hvort ástæða er til að hafa Landsbankann og Útvegsbankann undir slíku eftirliti, og skal ég ekki dæma um það að svo stöddu. Það mun hinsvegar rétt, sem hv. 5. landsk. upplýsti, að Útvegsbankinn hefir ekki tekið þátt í kostnaðinum af eftirlitinu, en engu að síður hefir bankinn þó beðið mig að koma til að athuga plögg bankans og meta hans hag. Þykir mér rétt, að þetta komi fram. Að því er Landsbankann snertir, þá hefir hann greitt sinn hluta af eftirlitskostnaðinum, framan af a. m. k., og skal ég ekkert um það segja, hvort hann hefir hætt því. Þótt Útvegsbankinn hafi neitað að greiða sinn hluta af kostnaðinum, er bankinn skyldugur til að greiða þetta að 1., og eins og hver önnur vanræksla af ríkisstj. að láta bankann ekki borga. Útvegsbankinn heyrir undir l. frá 1923 um eftirlitsmann með bönkum og sparisjóðum og getur ekki komizt undan því að greiða þau gjöld, sem á hann eru lögð.

Mér er það ljóst, að tilefnið til þess, að frv. er fram komið, er misskilningur á því, hvernig þetta starf er starfrækt og hvernig hægt er að starfrækja það. Má vera, að ég hefði getað varið meiri tíma í eftirlitið en ég hefi gert, en það liggur í öllum aðstæðum, eins og ég fyrr sagði, að daglegt eftirlit verður ekki framkvæmt.

Hv. 5. landsk. spurði að því, og þó varla af því, að hann ætlaðist til þess, að því yrði svarað, hvort eftirlitið hefði afstýrt nokkrum óhöppum í sambandi við sparisjóðina. Get ég upplýst hv. þm. um það, að 2 sparisjóðir a. m. k. eiga mér líf að launa, ef svo mætti segja. Höfðu þessir sparisjóðir orðið fyrir heiftarlegum árásum, sem ég get gert hv. 5. landsk. nánari grein fyrir, ef hann óskar eftir, í samtali, er keyrt höfðu þá í strand að meira og minna leyti, en að ég kom og skoðaði sjóðina og gaf yfirlýsingu um hag þeirra, hafði þær verkanir, að þeir störfuðu áfram og starfa væntanlega framvegis, ef yfirstandandi vandræðatímar koma þeim ekki á kaldan klaka. Gæti ég nefnt mörg fleiri dæmi slík um þýðingu starfs míns, jafnvel í sambandi við banka, þótt ofsóknirnar, sérstaklega gegn einni bankastofnun, hafi verið meiri en svo, að eftirlitið réði við það.