09.03.1933
Neðri deild: 20. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (3935)
82. mál, fátækralög
Flm. (Guðbrandur Ísberg):
Mér er það gleðiefni, að hæstv. dómsmrh. leggur þann skilning í l. frá 1928, að það opinbera eigi að borga kostnaðinn, ef slæpingjar eða aðrir óreiðumenn eru settir inn eftir dómi. Ef þetta er rétt, geta og sveitarfélögin komið þessum kostnaði af sér með því að heimta slíka menn dæmda, en þetta frv: er hinsvegar fram komið vegna þess, að komið hefir krafa um endurgreiðslu á dvöl manns á Litla-Hrauni samkv. dómi, og hélt ég, að ef til vill ætti að draga þá ályktun af þessu, að ríkisstj. líti svo á, að sveitarfélögunum bæri að endurgreiða þetta. Verði skilningi hæstv. ráðh. á þessum lagastað hinsvegar haldið í framtíðinni og l. framkvæmd samkv. honum, má segja, að þessi breyt., sem farið er fram á með þessu frv., sé óþörf, en eins og ég tók fram, er frv. fram borið fyrst og fremst vegna þessarar endurgreiðslukröfu, sem ég gat um, að fram hefði komið.