07.04.1933
Neðri deild: 47. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (3940)

82. mál, fátækralög

Frsm. (Guðbrandur Ísberg):

Það, sem ég benti á, var það, að þessar tvær gr., 51. gr. fátækral. frá 1927 og 9. gr. laga um bráðabirgðabreyt. á hegningarlögunum frá 1928, væru svo að segja samhljóða, þar sem um það er að ræða, að sveitarstjórnir geti fengið þurfalinga setta á vinnuhæli sakir óhlýðni, þrjózku, leti, drykkjuskapar, illinda eða óknytta. Munurinn á ákvæðum þessara greina er aðeins sá, að í hinni fyrri er talið, að samþykki lögreglustjóra þurfi að koma til, en hinni síðari tekið fram, að dómur þurfi að ganga í málinu. Ég sé því ekki neinar líkur til, að þar sem það er sami maðurinn, sem í báðum tilfellunum á að úrskurða eða dæma, þá verði, hvort sem dómur eða úrskurður er uppkveðinn, byggt á sömu forsendum. Það, sem ég því vil undirstrika, er það, að þar sem það er rétt, að sveitarstjórnir geti fengið greiddan dvalarkostnað fyrir slæpingja sína á vinnuhæli, ef þau heimti dóm yfir þeim, þá eigi það ekki að koma fyrir, að úrskurður komi í staðinn fyrir dóm og kostnaðurinn lendi á sveitarfélögunum.

Þar sem nú hér er ekki um að ræða að auka ríkissjóði kostnað umfram það, sem honum ber, þá fæ ég ekki séð, hvað geti verið á móti því að breyta orðalagi 51. gr. fátækralaganna. Þannig leit allshn. líka á og þess vegna kom frv. aftur fyrir deildina.