02.05.1933
Neðri deild: 63. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2448 í B-deild Alþingistíðinda. (3953)
179. mál, innflutningsbann á niðursoðinni mjólk
Jón Auðunn Jónsson:
Ég skal ekki bæta miklu við það, sem hv. 3. þm. Reykv. hefir sagt. Menn muna sjálfsagt, að hér í þinginu hafa oft komið fram óskir um það að vernda þessa mjólkurniðursuðu í Borgarnesi og það hefir verið gert með beinum fjárframlögum úr ríkissjóði; það dugði ekki til. Varan var svo léleg, að það var ekki hægt að selja hana. Nú er öðru máli að gegna, því varan er orðin góð vara, og ég veit ekki betur en að niðursoðin mjólk frá Borgarnesi gangi út svo að segja jafnóðum. Öll innlenda framleiðslan selst jafnóðum, og ég hygg, að salan geti aukizt talsvert mikið ennþá. Nú sem stendur er ekki leyft að flytja inn erlenda mjólk, þó að sumstaðar þar, sem ég er kunnugur, fái menn ekki nóga mjólk frá niðursuðuverksmiðjunni í Borgarnesi. Ef það kæmi fyrir, að fleiri niðursuðuverksmiðjur risu upp í landinu og mjólkin gengi ekki út, þá dygði ekki að setja þetta bann. Ef ekki væri markaður innanlands, þyrftum við að fara að flytja út. Hv. þm. Mýr. talaði um óeðlilega lágt verð á erlendri dósamjólk. Menn mega ekki undra sig á því, þó að okkur þyki verð á erlendri mjólk lágt, þar sem mjólkin er framleidd svo ódýrt, að seljendur fá ekki meira en 6—7 aura fyrir mjólkurpottinn, kominn að fabrikunni. Það er ekki óeðlilegt, þó að verðið á þeirri mjólk sé svo lágt, að við getum ekki keppt við hana; en það er nú svo, að menn hafa séð, að þessi niðursuða hefir verið að komast í það horf að framleiða góða vöru, og hefir mjög lítið verið flutt inn af erlendri mjólk þrátt fyrir það, að verðið á erl. mjólk hafi verið mun lægra. Ég vildi beina því til hv. aðalflm., sem líka er í utanríkismálanefnd — (BÁ: Nei, laus allra mála). Hann ætti kannske að athuga það samt, þó að hann sé ekki í þeirri virðulegu n. lengur, að það er ekki víst, að slík bönn sem þessi verki vel á samninga við aðrir þjóðir, allra sízt ef ekki er hægt að færa full rök fyrir þeim. Í 2. gr. er sett ákvæði um, að hægt sé að setja hámarksverð á þessa vöru. Ég vildi spyrja, við hvað á að miða það hámarksverð? Á að miða við það, sem erlenda mjólkin myndi kosta hér á landi með þeim tolli, sem nú á að leggja á hana, eða eitthvað annað? Þetta er eingöngu gert vegna framleiðendanna. Ég veit, að þeir þurfa að fá meira fyrir sína framleiðslu, en hinsvegar verður að gæta þess, að þeir, sem endilega þurfa að nota þessa vöru, eru ekki færir um að taka mikilli hækkun, og þó að smátt sé, miðar þetta allt í sömu áttina, að halda dýrtíðinni við og kaupgjaldinu í því hámarki, sem það er nú í og flestir munu vera sammála um, að sé hærra en svo, að íslenzk framleiðsla geti þolað það. Skip, sem ég hefi með að gera, keypti t. d. síðastl. vetur hollenzka mjólk í Englandi, beint út úr tollbúðinni. Verðið á þeirri mjólk var miklu lægra en á þeirri mjólk, sem hér er seld. Okkur datt ekki í hug að birgja okkur upp með mjólk til heillar vertíðar. Svona skip þurfa að nota 8—9 kassa af mjólk á hverjum mánuði. Það getur munað nokkru á verðinu, en þegar varan er til innanlands, eru menn ekki að sigta eftir því að fá þessa útlendu vöru, en skirrast við að kaupa þá innlendu, þó dýrari sé. Ég er sannfærður um, að ekki eitt einasta skip hefir keypt erlenda mjólk til þess að birgja sig upp, og þess vegna er ástæðulaust að setja þetta innflutningsbann. (BÁ: Skipin mega taka 20 kassa í túr). Það gerir ekkert skip. Hinsvegar er ekkert bann til í þessu efni. Á ísfiskveiðum, þegar færri menn eru um borð, taka þau ekki meira en 4 kassa. Það gæti verið ástæða til þessa banns, ef svo væri, að mjólkin frá þessari niðursuðuverksmiðju gengi ekki út, en væri þó seld með skaplegu verði, en eins og nú er, getur þetta leitt til þess, að þessi verksmiðja, sem er eina verksmiðjan í þessari grein hér á landi, geti haldið uppi óeðlilega háu verði, sem gæti leitt til þess, að t. d. skipin færu að birgja sig upp með erlendri mjólk til fleiri mánaða. Það mundi draga úr sölumöguleikum þessarar verksmiðju, og væri það illa farið.