31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2457 í B-deild Alþingistíðinda. (3969)

179. mál, innflutningsbann á niðursoðinni mjólk

Jón Baldvinsson:

Út af orðum hv. 4. landsk. vil ég aðeins taka það fram, að það er algengt, að vörur séu seldar við lægra verði en þær eru „nóteraðar“ á opinberlega. Heimsmarkaðsverðið á vörum er ekki alltaf það sama og söluverð þeirra. Það kemur þráfaldlega fyrir, að hægt er að fá vörur keyptar undir hinu nóteraða verði, en það kemur sjaldan fyrir, að söluverðið sé hærra. Ég þykist vita, að hver einasti vöruinnflytjandi hafi orðið var við þetta. Og þess vegna er það ekkert óeðlilegt, þó að niðursoðin mjólk sé boðin til sölu fyrir lægra verð en hún er nóteruð, og þarf það alls ekki að stafa af því, að hinir stóru mjólkursöluhringar erlendis ætli sér að koma niðursuðuverksmiðjuni í Borgarnesi á kné, þó að hv. 4. landsk. virðist leggja trúnað á þá firru.