30.05.1933
Neðri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (397)

1. mál, fjárlög 1934

Þorleifur Jónsson:

Ég skal ekki lengja þessar fjárlagaumr. mikið. En af því að ég á hér eina litla brtt., vildi ég segja fáein orð.

Í upphafi þessarar umr. skýrði hv. frsm. fjvn. Nd. frá því, að n. hefði komið sér saman um að leggja til, að fjárl. yrðu samþ. óbreytt. Ekki var það þó af því, að n. væri svo sérstaklega ánægð með afgr. þeirra frá Ed., þar sem útgjöld þeirra hafa hækkað mjög við meðferð þeirra þar, og auðvitað var 22. gr., eins og hún var orðin, sérstakur þyrnir í augum fjvn.

Þótt n., eins og sagt var, væri ekki ánægð með afgr. Ed. á frv., þá efaði hún, að í þessari d. næðist nokkurt samkomulag til þess að laga frv. svo, að tekjuhalli minnkaði að mun. Og enda þótt það gæti tekizt, þá efaði hún einnig, að Ed. samþ. það. Og þar sem margir álíta, að þing þetta sé búið að standa nógu lengi, og n. áliti, að af því kynni að leiða nokkurum dögum lengra þing, ef farið yrði að opna fjárl., lagði hún að ráði stj. eindregið til, að það yrði ekki gert. En við þessa umr. risu menn upp og hófu upp raust sína um það, að ófært væri að samþ. fjárl. eins og þau væru, og því var það tekið upp, að fresta umr. um málið. Árangurinn af þeirri frestun liggur nú hér fyrir þessari hv. d., sem er brtt. þær, sem nú eru fram bornar.

Þegar mér varð það kunnugt, að komnar voru fram brtt. við fjárlagafrv., sem miðuðu til útgjaldaaukningar, þá fannst mér ég ekki geta setið hjá, ef svo færi, að fjárl. yrðu opnuð. Fjvn. Nd. hafði lagt til, að til ræktunarvegar í Hornafirði yrði lagðar fram 2400 kr. úr ríkissjóði, og þessi till. var samþ. í d. með nær 20 atkv. Mér fannst það því mjög rangt af Ed. að fara að leggjast á þessa litlu till., sem hafði fengið svo mikið fylgi hér í hv. d., og var svo sjálfsögð og sanngjörn till. Það er kunnugt, að þorpsbúar í Hornafirði hafa með dáð og dugnaði þegar gert mikið að því að rækta þar land, sem áður var óræktað, og er eign ríkissjóðs. Þeir eru búnir að rækta um 80 ha. af þessu landi, og nú er eftir að gera veg um það. Sú kostnaðaráætlun hefir verið gerð um þennan veg, að hann muni kosta um 6 þús. kr. Frá því sjónarmiði er hér ekki farið fram á, að ríkissjóður leggi fram nema um 1/3 kostnaðar.

Þessi till. er einna sanngjörnust af þeim till., sem bornar hafa verið fram við fjárl. hér við þessa umr., og vil ég halda henni fram, ef annars koma til breyt. á fjárl. En þó mun ég ekki halda henni til streitu, ef aðrar brtt. verða felldar. Ætla ég að sjá, hverju fram vindur, og ef ég sé að aðrar brtt. fyrir framan mína verði felldar, þá get ég tekið þessa till. aftur í þeirri von, að fjárl. verði ekki opnuð.