02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2468 í B-deild Alþingistíðinda. (3986)

179. mál, innflutningsbann á niðursoðinni mjólk

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Það er nú orðið aðalatriði andmælenda þessa máls, að verið sé að gefa einu fyrirtæki einkarétt um framleiðslu og sölu þeirrar vörutegundar, er það framleiðir. Hv. þm. Borgf. hefir nú reyndar sýnt, að hverjum einum er frjálst að framleiða og selja sömu vörutegund. Ég skal athuga, hvernig þetta er nú. Á þessari vörutegund er í raun og veru innflutningsbann nú, vegna þeirra gjaldeyrisráðstafana, er gerðar hafa verið (PHalld: Nægir það þá ekki?). Jú, það getur fullnægt meðan það stendur. En hve lengi verður það? — Hvað verðinu viðvíkur, þá er rétt að skýra frá því, að upphaflega var verðlag verksmiðjunnar miðað við samtíma markaðsverð á erlendri mjólk, enda var það gert að skilyrði frá hendi innflutningsnefndar. Eftir lítinn tíma koma svo seljendur erlendrar mjólkur og sjá, að þeir geta selt mjólkina lægra verði. Er þá mjólkurverðið lækkað. En nokkru síðar koma enn boð um lægra verð á erlendri mjólk. Er þá farið að rannsaka þær breyt., sem orðið hefðu erlendis á markaðsverði mjólkur á þessum tíma. Kom þá í ljós, að það hafði ekki breytzt sem nokkru nam á öllum þessum tíma. Var því verðið á niðursoðinni mjólk orðið lægra hér en ætla mátti, að verið hefði, þó sala hefði verið frjáls. Þetta bendir óneitanlega í þá átt, að erlendir mjólkurframleiðendur hafi ætlað sér að selja hér niðursoðna mjólk með „dumping“ verði, aðeins til þess að koma þessari innlendu framleiðslu hér á kné, sem vita mátti, að mundi verða auðvelt. — Það er nákvæmlega víst, að lögin verða aldrei notuð til þess að hækka mjólkina óeðlilega. Hinsvegar mættu þau gjarnan stuðla að því, að mjólkurverðið lækkaði ekki til neytendanna niður úr því, sem það er nú, heldur jafnvel hækkaði, en það gæti orðið á þann hátt, að markaður ykist og framleiðslan um leið, en samhliða minnkaði nokkuð rekstrarkostnaður á hvern lítra mjólkur. Nú fá þeir bændur, er framleiða mjólk til niðursuðu, ekki nema 12—14 aura fyrir lítra. Það sést því, að þeir gera ekki háar kröfur. En þar sem þeir eiga ekki um annað að velja, þá óska þeir þess eins að fá að halda þessari starfsemi áfram og njóta þessarar litlu innanlandssölu, sem er og væntanlega verður á niðursoðinni mjólk.

Hv. 4. þm. Reykv. hélt því fram, að þetta fyrirtæki vildi fá aðstöðu til að hækka verðið. En heldur hv. þm. ekki, að ef farið væri að okra á verðinu, svo að hér yrði um verulegt gróðafyrirtæki að ræða, að upp risu fljótlega önnur samskonar fyrirtæki? — Á því er enginn vafi, að þau mundu fljótlega rísa upp. En þar sem verðið er svo lágt, að naumast má telja, að þessi framleiðsla beri sig, þá er engin hætta á, að sett verði á stofn önnur slík fyrirtæki. En á meðan verðinu er svo í hóf stillt, hafa neytendurnir ekkert upp á að klaga, þótt fyrirtæki þetta fái að vera eitt um markaðinn.