30.05.1933
Neðri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (400)
1. mál, fjárlög 1934
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég mun ekki rekja ræðu hv. þm. V.-Húnv. lið fyrir lið, vegna þess að allt eða flest, sem hann sagði, er í ósamræmi við brtt. hans. Þó þær væru allar samþ., myndi hann engu að síður telja sig þurfa að halda þessa ræðu. Till. háttv. þm. fullnægja sannarlega ekki ræðuhöldunum. Og að svo miklu leyti, sem till. fullnægja ekki ræðunum, geta þær ekki talizt ásökun til þeirra, sem vilja samþ. fjárl. óbreytt. Hv. þm. getur vitanlega kvartað yfir því, hvað ég sé vongóður og miklazt sjálfur af sínu vonleysi. En ég vil þó heldur vera vongóður heldur en vonlaus. Ég minnist þess ekki, að ég hafi á undanförnum þingum vakið neinar þær vonir, sem ekki hafa rætzt. Það, sem ég sagði á síðasta þingi um það, að ef tekjuaukar og sparnaðartill., sem þá lágu fyrir, væru samþ., þá væru vonir um að jafna mætti greiðsluhallann á 1½ ári. Ekki er hægt að sjá annað nú en að þetta standist á þessu ári og því fremur á næsta ári. Og þar sem allt bendir nú upp á við, þá get ég verið vonbetri nú en áður. Það er vitanlega engin dyggð að vera vongóður, en þá ekki heldur að vera vonlaus. Ég skal taka dæmi. Hv. þm. sagði, að ég áætlaði verðtollinn of háan, ½ millj. kr. hærri en hann varð í fyrra. En það er lægra en hann varð á vonda árinu 1931 og 1 millj. lægra en 1930. Hv. þm. skildi ekki, að hans till. gæfu ekki meiri sparnað en tæpar 85000 kr. Ég fékk nú þessa upphæð með því að leggja liðina fljótlega saman, og útkoman varð 83700 kr. (HJ: Þetta er vitlaus samlagning, það munar 20 þús. kr.). Ég held, að það muni engum 20 þúsundum! En hv. þm. reiknar með sínum sparnaði heimildina til að kaupa hús og jarðir. Og hv. þm. telur mig hraustan, að ætla að kaupa það fyrir 20 þús. kr. Nú vil ég segja það, að ég myndi ekki sýta, þó þessar heimildir væru felldar niður. Við skulum segja, að sýslumannshúsið í Borgarnesi væri keypt fyrir 50—60 þús. kr., Skálholt fyrir 30 þús. kr. og Blönduósshúsið fyrir 18 þús. kr. Þetta verða þá alls um 100 þús. kr. En þótt þessir liðir væru settir niður, þá gæti ég ekki kallað það sparnað. Ef þetta er sparnaður, þá er auðvelt að spara. Háttv. þm. V.-Húnv. getur þá hugsað sér að kaupa hús fyrir t. d. 20000 kr. og hætt síðan við það og sagt svo hróðugur, að hann hefði sparað þarna 20000 kr. En um þessar eignir er það að segja, að ætlazt er til, að þær verði keyptar fyrir sannvirði. Er þá hvorki um eyðslu né sparnað að ræða. Það fer eftir atvikum, hvað ríkissjóður gerir að því að auka sínar fasteignir.
Þá sagði háttv. þm., að vaxtatekjurnar mundu bregðast. Vaxtatekjurnar í frv. eru reiknaðar út af kunnugum mönnum í stjórnarráðinu og skakkar varla. Það er að vísu rétt, að búið er að ráðstafa vaxtagreiðslu Búnaðarbankans. En ég gat um það, að annað kæmi á móti. Ég gleymdi þessu því ekki.
Aðalatriðið í þessu máli er það, að till. hv. þm. V.-Húnv. bjarga engu, og enn síður gera till. annara það. Við, sem viljum samþ. frv. óbreytt, erum ekki þar með að segja, að það sé gott. En við viðurkennum, að það verði líkt, hvort sem till. eru samþ. eða ekki. Það er því ekki rétt að segja, eins og hv. þm. gerði, að hér sé ekki verið að hugsa um hag lands og þjóðar, þó till. séu ekki samþ. Þar sem þær eru ekki veigameiri en þær eru, þá falla slík ummæli máttlaus niður. Það er að vísu ekkert að því að halda ræður um sparnað. En það er líka réttmætt að bera slíkar ræður saman við sparnaðartill. ræðumanns. Margir eru líka svo gerðir, að þeir tala ávallt um sparnað, hvernig sem viðhorfið er. Eitt sinn var maður í sóknarnefnd, sem varð þess vísari, að tekjuhalli hafði orðið á kirkjureikningi, er stafaði af því, að altarisgöngur höfðu orðið með meira móti það árið. Hann hélt ræðu og sagði, að ef svo héldi áfram, þá væri öll sóknin á beinni leið til helvítis.