15.05.1933
Neðri deild: 74. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2514 í B-deild Alþingistíðinda. (4075)
191. mál, mjólkurbúastyrk og fl.
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Mér er ekki alveg ljóst, hvað það er, sem vakir fyrir flm. þessa frv., hvort það er frekar þörf þeirra mjólkurbúa, sem hér er talað um, að fái aukastyrk, eða fullvissan um það, að Mjólkurbú Flóamanna geti ekki staðið undir þeim skuldbindingum, sem á því hvíla, og því beri nauðsyn til að létta þær. Mér skilst vera gengið út frá því í frv., að Mjólkurbú Flóamanna geti greitt 200 þús. kr. af stofnkostnaði sínum. Því er slegið föstu í grg. frv., að frv. muni ekki hafa nein bein útgjöld í för með sér fyrir ríkissjóð. Það má vera, að það verði ekki, en ég hygg, að Mjólkurbú Flóamanna geti ekki greitt þær 200 þús. kr., sem því er ætlað að greiða samkv. frv., og ef svo færi, lenti það óbeinlínis á ríkissjóði, þar sem búnaðarbankinn yrði að afskrifa skuldina hjá sér.
Mér finnst, að það hefði verið miklu eðlilegri leið í þessu máli að taka Mjólkurbú Flóamanna út úr og gera það upp á þann hátt, að það yrði sæmilega starfhæft. Jafnframt mætti taka til athugunar aðstöðu hinna mjólkurbúanna til rekstar, og ef það kæmi í ljós, að einhver þeirra stæðu ekki á sæmilegum grundvelli fjárhagslega, væri sjálfsagt að rétta þeim á einhvern hátt hjálparhönd.
Nú í umr. hefir verið gerður samanburður á frystihúsunum og mjólkurbúunum, og því hefir verið haldið fram, að mjólkurbúin væru hlutfallslega miklu dýrari fyrirtæki heldur en frystihúsin, en þetta er alls ekki rétt, a. m. k. alls ekki, ef tillit er tekið til þess vörumagns, sem húsin hvor fyrir sig umsetja. Ég skal nefna sem dæmi, að mjólkursamlag Eyfirðinga umsetti mjólkurvörur fyrir um 285 þús. kr. síðasta ár, en eftir þeim upplýsingum, sem ég hefi getað fengið, skilst mér, að sú bygging hafi kostað um 150 þús. kr. Til samanburðar ætla ég að taka það frystihúsið, sem fyrst var reist hér á landi með það fyrir augum að flytja út freðið kjöt. Byggingarkostnaður þess varð um 100 þús. kr., en á síðastl. ári var með því verðlagi, sem þá var á vörum, hægt að umsetja í þessu húsi vörur, sem voru seldar fyrir um 70 þús. kr. Hvor stofnunin halda svo háttv. þm., að vinni meira gagn í hlutfalli við stofnkostnað, sú, sem kostar 150 þús. kr. og umsetur vörur fyrir nær 300 þús. kr., eða hin, sem kostaði 100 þús. kr. og umsetur vörur fyrir 70 þús. kr.?
Þau ákvæði, sem snerta frystihúsin og felast í frv. því um ýmsar ráðstafanir vegna kreppunnar, sem nýlega er afgreitt, voru eingöngu til þess að færa þessi fyrirtæki, frystihúsin, inn á sama grundvöll gagnvart ríkissjóði og mjólkurbúin eru nú á. Og ef hægt er að sýna fram á það með rökum, að mjólkurbúin standi ekki verr að vígi en frystihúsin, heldur miklu betur, þá sést, að það hefir verið fullkomin ástæða til þess að leiðrétta það misræmi, sem átt hefir sér stað milli þessara tveggja náskyldu fyrirtækja hvað ríkissjóðshjálp snertir. Það er vitanlega eins nauðsynlegt, að frystihúsin séu til í kjötútflutningshéruðunum eins og rjóma- og mjólkurbúin eru nauðsynleg til þess að gera mjólkina markaðshæfa. Og það má einnig benda á það, að mjólkurframleiðendur bera nú ólíkt meira úr býtum en kjötframleiðendur. T. d. hefir mjólkursamlag Eyfirðinga getað borgað 19½ eyri á hvert kg. mjólkur. Þetta er hreint ekki svo lítið og miklu meira en það, sem kjötframleiðendurnir fá fyrir kjötið. Að sjálfsögðu er rétt að taka það fram, að Eyfirðingar hafa sýnt svo stórkostlega miklu betri útkomu heldur en hin mjólkurbúin, og það svo, að það ætti kannske að stuðla að því með löggjöf, að þau lærðu af mjólkursamlagi Eyfirðinga, því ég sé enga eðlilega ástæðu fyrir því, að það geti veitt sínum meðlimum betri kjör en hin félögin. Það hlýtur að stafa af einhverri óheyrilegri óreiðu eða dáðleysi í rekstri þessara fyrirtækja hér fyrir sunnan, að útkoman er svo léleg sem raun er á. Við því er ekki hægt að gera, sem mistekizt kann að hafa um stofnun þessara fyrirtækja, úr því sem komið er, en ólagið á rekstri þeirra verður að lækna, ef á að fara að styrkja þessar stofnanir enn. Það verður að vera tryggt, að þær hér eftir feti ekki í sín fyrri fótspor með svo herfilegri ráðsmennsku með fé þjóðarinnar sem þar sýnist hafa verið. Ég skal fúslega játa það, að þegar á að styrkja slík fyrirtæki sem mjólkurbúin, þá sé ekki síður ástæða til þess að verðlauna þau félög, sem bezta afkomu sýna á rekstri sínum, en ég tel þetta frv. ekki fram komið í þeim tilgangi að verðlauna neina, heldur sé aðaltilgangur þess sá, að reyna að bjarga Flóabúinu upp úr því feni, sem það er sokkið i. Það er nú þannig statt, að það er ekki hægt að hjálpa því á annan hátt en að gefa því, en hvort þá á líka að gefa öllum hinum mjólkurbúunum eins, það er náttúrlega álitamál, þegar um slíkan fátækrastyrk er að ræða sem hér er. Þegar sá, sem þarfnast fátækrastyrks, fær styrk hjá bæjar- eða sveitarfélagi, þá fær hinn, sem ekki þarf styrks með, heldur engan styrk, þó vel mætti segja, að það væri fullkomlega sanngjarnt. Þetta er nú einu sinni svo, og hér getur það ekki orðið öðruvísi. Þjóðfélagið þarf að hjálpa þeim, sem ekki geta hjálpað sér sjálfir, og það kemur niður á hinum, sem betur gengur.
Svo að ég víki aftur að samanburði á mjólkurbúunum og frystihúsunum, þá mun það vera svo, að allmikill hluti af stofnkostnaði mjólkurbúanna mun hafa farið til þess að gera þau sem vönduðust og sem mestar framtíðarbyggingar. Aftur er það áreiðanlegt, að ef eins hefði verið farið að við byggingu sumra frystihúsanna, þá hefðu þau orðið miklu dýrari en þau urðu. Sá verðmunur stafar að nokkru leyti af þeim barnasjúkdómum þessara fyrstu húsa, sem stöfuðu af því, að mönnum var fyrst ekki nægilega ljóst, hverjar leiðir voru beztar um form og fyrirkomulag á húsunum. Og ég get a. m. k. sagt það um fyrsta frystihúsið, sem byggt var og ég er kunnugastur, að það hefði verið byggt æðimikið öðruvísi en gert var, ef átt hefði að byggja það nú. Og úr því að á það hefir verið bent, að vel væri til fundið að verðlauna þau mjólkurbú, sem brotið hefðu ísinn hér á landi, þá get ég ekki stillt mig um að minna á það, að ekki væri síður ástæða til að verðlauna þau félög, er reistu fyrstu frystihúsin, því hvað sem verða kann um frystikjötsmarkaðinn í framtíðinni, þá er þó víst, að hingað til hafa frystihúsin unnið ómetanlegt gagn fyrir kjötmarkaðinn, því verðið á frysta kjötinu hefir alltaf verið hærra en verðið á saltkjötinu. Auk þess geta menn ímyndað sér, hvaða verð hefði orðið á saltkjöti undanfarin ár, ef allt kjöt hefði verið saltað, þegar ekki hefir einu sinni verið hægt að selja í Noregi það saltkjöt, sem við höfum haft á boðstólum. Ég fyrir mitt leyti lít svo á, að hér eigi aðeins að tala um hjálp handa því eina mjólkurbúi, sem nú er á heljarþröminni, og þeirri hjálp get ég verið fylgjandi, en hvað snertir önnur mjólkursamlög, sem betur eru stödd; sé ég ekki fært að styrkja þau þannig sem frv. ætlast til, enda ætla ég, að það mál sé ekki nægilega hugsað með tilliti til mjólkurfélaga, sem síðar kunna að verða stofnuð hér á landi og ættu að geta sneitt hjá þeim byrjunarörðugleikum, sem þetta bú hefir orðið fyrir. Ég hygg, að þau önnur mjólkurbú, sem nefnd eru í frv., hafi komizt hjá slíkum byrjunarágöllum.
Af þessum ástæðum tel ég mig geta verið með brtt. þeirra hv. 1. Skagf. og hv. þm. N.-Þ. En það er hvorki af andúð né illvilja gagnvart þeirri framleiðslugrein, sem hér ræðir um. En mér finnst réttmætt að leita að réttlátri úrlausn eða mælikvarða milli þessara tveggja aðalframleiðslugreina landbúnaðarins og hygg, að svo bezt verði tryggð framtíð þeirra, að réttlátur grundvöllur fáist fyrir báðar þessar framleiðslugreinir.