15.05.1933
Neðri deild: 74. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2525 í B-deild Alþingistíðinda. (4079)
191. mál, mjólkurbúastyrk og fl.
Jón Auðunn Jónsson:
Það er aðallega fyrirspurn til þeirra hv. þm., sem hafa borið fram till. um styrk til frystihúsanna, um það, við hvað er miðað, þegar talað er um stofnkostnað. Ég veit, að samvinnufél. hefir keypt frystihús. Byggingarkostnaður þessa húss var frek 100 þús. kr., en samvinnufél. keypti það fyrir 50 þús. kr. Er nú meiningin, að þetta samvinnufél. fái ríkisstyrk til kaupanna? Og ef svo er, þá 50 þús. eða 25 þús. kr. Það gerir náttúrlega mikinn mun á styrkupphæðinni, við hvaða upphæð er miðað, Kaupverð eða kostnaðarverð.
En hvað viðvíkur því, sem hv. þm. N.Þ. sagði um kjötverðið og ullarverðið, þá verð ég að draga í efa, að það sé rétt. Að því leyti er kjötið snertir, þá veit ég ekki til, að fengizt hafi á erlendum markaði fyrir saltkjötið meira en 44—45 aur. á kg., a. m. k. ekki á Vesturlandi. En ef það er rétt, sem hv. þm. sagði, þá væri rétt að breyta um og nota meira þann innlenda markað, þar sem verðið er um það tvöfalt eins og fyrir skyr og smjör, og draga meira úr hinni framleiðslunni.
Að því er snertir gengið á krónunni, þá koma að sjálfsögðu sömu hlutföll til greina á fiskverðinu og kjötverðinu.