13.05.1933
Neðri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2543 í B-deild Alþingistíðinda. (4127)
186. mál, sala mjólkur og rjóma
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):
Ég vildi svara hv. 4. þm. Reykv. nokkrum orðum.
Hann finnur mjög að því, að málið skyldi ekki vera lagt fyrir bæjarstjórnir Rvíkur og Hafnarfjarðar. Verð ég þó að segja það, að svo framarlega sem gert er ráð fyrir, að nokkur alvara sé með að koma þessu máli fram, hlýtur maður að telja illa farið, ef fara ætti að tefja málið með því að senda það frá Heródesi til Pílatusar, eða jafnvel grafa því gröf hjá bæjarstj. hér og í Hafnarfirði, enda vill svo vel til, að Rvík a. m. k. hefir hér á að skipa góðum fulltrúum fyrir sinn málstað, því að nokkrir bæjarfulltrúanna eiga sæti hér á þingi, þ. á m. hv. 4. þm. Reykv. (ÓTh: Og borgarstjórinn sjálfur líka). Já, rétt er það, og ég ætla, að Hafnarfjörður eigi sæmilegan málsvara sinna hagsmuna í þm. kjördæmisins. Það sýnist því heldur ekki vera nein ástæða til að fara að stofna málinu í hættu með því að senda það til umsagnar þessum bæjarstjórnum.
Hv. 4. þm. Reykv. tók það réttilega fram, að meginþátturinn í þessum ráðstöfunum væri að koma á sölusamtökum með mjólkurframleiðendunum. Í þessu skyni skal stofnaður m. a. svonefndur verðjöfnunarsjóður, sem í renni ákveðið gjald af hverjum mjólkurlítra, sem seldur er beint til neyzlu á sölustað, en tekjum verðjöfnunarsjóðs skal varið til að greiða uppbót á verði seldra mjólkurafurða innan sölusvæðisins, vegna verðfallsins, sem vinnsla mjólkurinnar hefir í för með sér. Get ég ekki séð, að neitt geti verið við þessar ráðstafanir að athuga, því að þeir, sem verðuppbótina fá, víkja að nokkru leyti fyrir hinum af mjólkurmarkaðinum og vinna úr sinni mjólk, sem þó gefur óhagstæðari útkomu. Þeir mjólkurframleiðendur, sem skattlagðir verða samkv. frv., verða því betur staddir eftir en áður, meðan salan er óskipulögð og hver ríður annan niður á markaðinum, eins og þetta er nú, þar sem þeir fá nokkurskonar forgangsrétt að mjólkurmarkaðinum og tryggja sig um leið gegn óeðlilegu verðfalli á framleiðslu þeirra —- mjólkinni. En það, sem þó er ánægjulegast við þetta, er það, að þótt báðir þessir aðilar fái meira verð fyrir afurðir sínar með þessu móti, þurfa neytendurnir þó ekki að bíða tjón við það, því að þetta getur náðst með því að koma milliliðakostnaðinum niður, en hann mergsýgur nú bæði framleiðendur og neytendur. Og svo er hitt víst, að ef núv. skipulagsleysi verður áfram ráðandi í þessum efnum, má telja vafalaust, að þess verði ekki langt að bíða, að framleiðendurnir troði skóinn hver niður af öðrum, vegna hinnar sífelldu samkeppni um markaðinn, og að þeir dragi hver annan niður smátt og smátt, þar til allir þeir, sem betri aðstöðuna hafa, jafnt sem hinir, liggja jafnflatir. Það er hinn mesti misskilningur, að atvinna þeirra manna, sem hv. 4. þm. Reykv. sérstaklega ber fyrir brjósti, framleiðendanna hér í lögsagnarumdæmi Rvíkur, sé lögð í rústir með ákvæðum frv., því að þeim er þvert á móti gefinn einkaréttur á að selja alla nýmjólk beint að heiman til neytendanna, en þeir eru margir, sem helzt vilja mjólkina nýja, og bætir það aðstöðu þessara framleiðenda enn frekar, því að sú sala fer fram milliliðalaust. Verða þessar ráðstafanir því, eins og fyrr er sagt, báðum aðilum til mikilla hagsbóta.
Ég hefði getað búizt við þeirri mótbáru frá hv. 4. þm. Reykv., að hann væri hræddur um, að þetta skipulag mundi verða til að skaða neytendurna, því að slíkt hefði verið eðlileg mótbára í alla staði frá bæjarbúum hér, en til öryggis í þessu efni kveður frv. svo á, að skipa skuli sérstaka n., sem ráði algerlega yfir verðlaginu, svo að framleiðendur hafi ekki á sínu valdi að skrúfa verðið upp úr öllu valdi.
Hv. 4. þm. Reykv. spurði, hvernig ákveða ætti söluverðið, og játa ég, að erfitt verður við það að fást. Ég býst við, að reynt verði að þræða þá leið, sem hv. þm. sjálfur benti á í því sambandi, og að miðað verði við meðalaðstöðu til framleiðslunnar, þannig, að meðalverðið verði ákveðið eftir því, sem nauðsynlegt þykir, til þess að búskapurinn geti borið sig sæmilega. Og ég fyrir mitt leyti treysti því fullkomlega, að í þessa n. verði valdir svo góðir menn, að verðið verði ekki haft ósanngjarnt, og má enda frekast búast við því, að verðið lækki frá því, sem nú er, fremur en hitt, að verðið fari hækkandi, án þess þó að þetta verði framleiðendunum til skaða. Þá vil ég bæta því við, að verðjöfnunarsjóðsskatturinn hittir alla jafnt, sem selja mjólk til bæjarins, viðskiptamenn Mjólkurfélags Rvíkur eins og aðra, svo að því fer alls ekki fjarri, að verið sé að níðast á framleiðendunum hér í lögsagnarumdæminu, og verð ég að segja það enn, að aðstaða þessara framleiðenda verður sízt verri en áður, nema síður sé, og er þeim ekki íþyngt með þessu fyrirkomulagi fremur en öðrum, er nýmjólk selja, enda mun meiri hl. þeirra vera því samþykkur, að þetta fyrirkomulag sé tekið upp, sem frv. ráðgerir. (PHalld: Þeir eru á móti því). Á fyrsta stigi málsins munu þeir allir hafa verið þessu fyrirkomulagi samþykkir, en síðan mun hafa komið afturkippur í suma þeirra, svo að þeir eru nú skiptir í málinu. Ég býst þó við, að þeir hljóti að sjá, að þetta er einmitt til hinna mestu hagsbóta fyrir þá, vegna hins mikla milliliðakostnaðar, sem nú leggst á mjólkina.