13.05.1933
Neðri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2545 í B-deild Alþingistíðinda. (4128)
186. mál, sala mjólkur og rjóma
Pétur Halldórsson [óyfirl.]:
Það var auðskilið af orðum hv. frsm., að n. hefir sett sig á móti því, að málinu væri vísað til umsagnar bæjarstjórnanna, af þeirri ástæðu, að n. telur víst, að bæjarstjórnirnar muni verða á móti málinu. Hv. frsm. talaði einmitt um það, að slíkt mundi verða til að tefja fyrir málinu og jafnvel grafa því gröf. Og segja mætti mér, að hv. flm. hefðu passað að koma ekki með frv. fyrr en þetta, til þess að geta komið með þessa mótbáru gegn því, að málinu yrði vísað til umsagnar aðalaðilja málsins. Er þarflaust að vera að taka fram fyrir hendur þessara aðilja, bæjarstjórnar og framleiðenda, og ekki ástæða til að vantreysta því, að þeir geti komið sér saman um eitthvert skipulag, sem öllum aðilum sé fyrir beztu. Og ef hér er virkilega um slíkt skipulag að ræða, sem tryggi í senn hagsmuni neytenda og framleiðenda, sé ég ekki, að nokkur minnsta ástæða geti verið til þess ótta, sem því hefir valdið, að bæjarstjórnirnar fá ekki að segja sitt álit á málinu. En þessu er ekki svo farið, heldur á að keyra málið í gegnum þingið á móti vilja bæjarstjórnanna, og þá líklega á kostnað neytendanna, því að það hlýtur að skýrast út frá því, að þetta verði á kostnað bæjarmanna, að bæjarstjórnirnar eru á móti málinu.
Háttv. frsm. sagði, að hér væri um að ræða betri aðstöðu bæði fyrir framleiðendur og neytendur. Annars heyrði ég ekki nægilega rök hans, en eitt af því, sem hann fullyrti, var það, að mjólkurútsölustöðunum mætti fækka, og með því fækkaði milliliðunum. Þetta er bara sagt út í bláinn. Það á sannarlega eftir að sýna sig, að mjólkurverð lækki, þó að útsölustöðunum verði fækkað. Ég lít svo á, að sú mjólkurbúð, sem allir eru ánægðir með, bæði framleiðandi og neytandi, eigi fullan rétt á sér. Ef t. d. er mjólkurbúð uppi á Sólvöllum, sem fólkið vili verzla við, þá er ekki hægt að segja því að fara niður í Aðalstræti og kaupa sína mjólk þar, enda þótt frsm. vilji halda því fram, að það sé öllum til hagnaðar.
Þá vildi hann halda því fram, háttv. frsm., að hér væri hver að troða skóinn niður af öðrum með hinni hörðu samkeppni. Þetta á hann líka eftir að sanna. Mér þætti gaman að vita, hvort mjólkin lækkaði í verði, þó samkeppnin minnkaði. Ég er því sannfærður um, að þessi ráðstöfun verði öðrumhvorum til tjóns, framleiðendum eða bæjarbúum, og ég er viss um, að háttv. flm. ætlast til þess, að það verði bæjarbúar, sem hún verður til tjóns, því að annars hefðu þeir ekki borið þetta fram. Enda ekki nema eðlilegt af umbjóðendum þeirra, sem ráða yfir hinum mikla markaði, sem hér er um að ræða fyrir mjólk og mjólkurafurðir.
Hvað snertir smámjólkurframleiðendurna hér í kringum Rvík, þá get ég sagt háttv. frsm. það, að þeir mótmæla harðlega, að frv. þetta verði samþ. Mér þótti dálítið einkennilegt það, sem háttv. frsm. sagði um þessa menn, að þeim væri gefinn einkaréttur til þess að selja nýmjólk beint í hús í kaupstöðunum. Hver getur gefið þeim þennan rétt? Ef þeir hafa hann, þá eiga þeir hann, og því þarf hvorki Alþingi né aðrir að gefa þeim hann. Það hættulegasta við frv. er það, að með því að það skerðir þennan einkarétt, þá miðar það að því að hækka mjólkurverð í bænum. Nú á að skattleggja þessa menn með því að láta þá greiða 50 kr. gjald fyrir hverja kú, sem þeir hafa: Takist með þessu að koma þeim á vonarvöl, sem frv. helzt virðist stefna að, þá tapar bæjarfélagið og þjóðfélagið þeim sem góðum skattþegnum, og þá greiða þeir heldur ekki þennan 50 kr. skatt.
Þá þótti mér dálítið spaugilegt svar háttv. frsm. viðvíkjandi því, hvað mjólkurverðið yrði eftir að þessi 7 manna n. hefði ákveðið það. Hann var t. d. spurður, við hvað það yrði miðað. Svarið var aðeins það, að það væri svo örðugt að gefa almennar reglur fyrir því, að um það væri hreint ekkert hægt að segja, a. m. k. ekki að svo komnu. Ég hélt, að þessu væri hægt að svara mjög fljótlega og ákveðið. Þegar þetta atriði er í svona mikilli óvissu, er ekki hægt að búast við því, að við Reykvíkingar getum sætt okkur við, að sett verði í lög slík ákvæði sem í frv. þessu felast. Mér finnst, að n. hefði beinlínis verið skylt að búa sig undir að svara jafnþýðingarmikilli spurningu sem þessari, og það m. a. s. að svara henni glöggt og skýrt. En með slíku svari sem háttv. frsm. gaf, viðurkenndi hann hreinlega, að verið væri að setja lög hreint og beint út í bláinn. Hvers vegna frv. kemur svona seint fram, að hvorki er hægt að bera það undir bæjarstjórn Rvíkur né Hafnarfjarðar, vil ég ekkert fullyrða. En helzt virðist, að hér eigi að knýja fram með valdi þá hluti, sem bæjarstjórnirnar hafa neitað um. Annars er það ekki verkefni Alþingis að úrskurða þessi mál, og það er ekki rétt af Alþingi að grípa inn í og fyrirskipa það, sem annar aðilinn getur ekki með neinu móti sætt sig við.