13.05.1933
Neðri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2550 í B-deild Alþingistíðinda. (4130)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég vildi aðeins svara hv. andmælendum þessa frv. nokkrum orðum í viðbót við það, sem hv. þm. G.-K. sagði. Hv. 4. þm. Reykv. hélt því fram, að við flm. frv. hefðum búizt við, að bæjarstjórnirnar í Rvík og Hafnarfirði mundu leggja á móti þessu frv., og þess vegna hefði ég verið því andvígur, að þeim yrði sent það til umsagnar. En ekki þurfti það að vera. Töfin ein út af fyrir sig gat orðið þess valdandi, að frv. næði ekki fram að ganga á þessu þingi, enda má það engan tíma missa úr því, sem komið er. Annars skal ég nú segja hv. þm. það, þó hann ætti að vita það úr annari átt, að það er ákaflega lítils að vænta frá bæjarstjórn Rvíkur og Hafnarfjarðar í þessu máli. Mjólkurfél. Rvíkur hefir í mörg ár reynt að komast að samkomulagi við bæjarstj. Rvíkur um þetta mál; en bæjarstj. hefir alltaf stjakað því frá sér, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár, og ekki gert nokkurn skapaðan hlut, og það er ekki sízt vegna þeirrar vanrækslu bæjarstjórnarinnar í þessum efnum, að frv. er nú komið á þennan rekspöl. Ennfremur skal ég geta þess, að reynsla nágrannaþjóða okkar í Noregi og Svíþjóð í þessum efnum hefir ýtt á eftir frv. Þar hefir þetta skipulag á mjólkursölunni gefizt svo vel, að bæði framleiðendur og neytendur eru hæstánægðir með það.

Ég þarf ekki að svara því, hvers vegna þetta mál var svo seint fram borið, að ekki hefir unnizt tími til að senda bæjarstjórnum Rvíkur og Hafnarfjarðar það til umsagnar; það gerði hv. þm. G.-K. Enda er það alkunnugt, að ekki flýtir það fyrir afgreiðslu mála á þinginu að leggja þau seint fram, svo að okkur flm. gat ekki verið neinn greiði að því. Nei, ástæðan fyrir drættinum var blátt áfram sú, að undirbúningur málsins hjá aðilum þess utan þings tók svo langan tíma, áður en samkomulag yrði um að flytja það í þessu formi.

Hv. 4. þm. Reykv. vildi halda því fram, að ákvæði þessa frv. til breyt. á núverandi ástandi hlytu að vera gerð á kostnað neytenda mjólkurinnar, að öðrum kosti hefðum við ekki flutt það, og ef það ætti að vera til hagsbóta fyrir framleiðendur, þá yrði það einungis á kostnað neytenda. En hv. þm. verður að gæta þess, að það þarf ekki svo að vera og er ekki svo þar, sem sett hafa verið slík lög sem þessi og reynd um nokkurra ára bil. Ég vil t. d. benda á, að þegar hægt er að fækka mjólkurbúðum — útsölustöðum mjólkurinnar — um helming, án þess að sölukostnaður mjólkurbúanna aukist nokkuð við það, þá segir það sig sjálft, að sölukostnaður mjólkurinnar minnkar um helming. (JAJ: En hvað kostar það kaupendur mjólkurinnar?). Það þarf ekki að kosta þá nokkurn skapaðan hlut. Er það ekki álíka kostnaðarsamt að sækja mjólkurflöskurnar, hvort sem mjólkurbúðin er t. d. hægra eða vinstra megin í götunni, sem kaupandinn býr við. En í sumum götum eru þær nú tvær — sín hvorum megin. Ég er ekki í vafa um, að það er hægt að fækka mjólkurbúðunum hér í bænum jafnvel um 2/3, án þess að nokkur óþægindi stafi af því, og það er hægt að dreifa búðunum skipulegar um bæinn en nú tíðkast. Auk þess er mikið af mjólkinni sett á flöskur og send þannig heim til neytenda, þeim að fyrirhafnarlausu, og til þess þarf engar sölubúðir. Nú skulum við segja, að þessum sparnaði af fækkun útsölustaðanna yrði skipt jafnt á milli kaupenda og seljenda mjólkurinnar; þá hefðu báðir aðilar hag af þessu.

Frv. sama efnis og þetta var einnig flutt á síðasta þingi, og þá var það reiknað út, að ef mjólkurbúðunum væri fækkað, þá yrði hægt að lækka útsölukostnað mjólkurinnar um 4 aura á hvern lítra. Og þá lá fyrir tilboð um það, að mjólkurverðið til neytenda skyldi lækkað um þessa 4 aura á lítra. Síðan hefir mjólkurverðið lækkað, svo að ekki virðist eins mikil ástæða til þess nú og í fyrra að láta alla lækkunina koma fram á verði mjólkurinnar. En ég ætla þó að fullyrða og jafnvel lofa því, að mjólkurverðið skuli ekki hækka í Rvík, að óbreyttu öðru verðlagi, þó að samþ. verði það skipulag á mjólkursölunni, sem í frv. felst; ég hygg, að verðið mundi heldur lækka.

Hv. 4. þm. Reykv. sagði, að hver mjólkurbúð, sem gæti sýnt, að hún bæri sig, væri með því búin að sanna sinn tilverurétt. Þetta þykir mér einkennileg speki. Ef hægt er að sýna, að ein mjólkurbúð við einhverja götu fullnægi þörfum kaupendanna við götuna, og ef hún er þannig sett, að hún sé þægileg fyrir alla neytendur, sem við götuna búa, þá virðist ekki þurfa á meiru að halda. En vegna þess skipulagsleysis, sem nú er á sölunni, þá er venjulega sett önnur mjólkurbúð í næsta húsi hinum megin við þessa sömu götu. Afleiðingin af þessu verður ætíð sú, að mjólkursalan skiptist til helminga á milli búðanna, en fyrir það, að mjólkursalan minnkar við skiptinguna í hvorri búðinni fyrir sig, verða framleiðendur mjólkurinnar að hækka sölulaunin smátt og smátt og áður en varir allt að helmingi, til þess að búðirnar geti borið sig með hinni minnkandi sölu — en neyðast til að gera það til að koma mjólkinni út. Er nú hægt að draga af þessum dæmum þá ályktun, að mjólkurbúðirnar hafi báðar fullkominn tilverurétt? Ég get ekki séð, að þetta sanni neitt annað en það, sem ég hefi margsinnis sagt, að hér er um óþarfa eyðslu og kostnað að ræða.

Hv. þm. sagði, að hér væri um að ræða sérmál á milli mjólkurframleiðenda annarsvegar og bæjarstjórnarinnar hinsvegar, sem þeir gætu sjálfir gert út um með samkomulagi. En reynslan hefir nú sýnt, að þeir hvorki geta það né gera. Samtök framleiðenda eru ekki það sterk eða heilbrigð, að þetta mál sé svo einfaldur hlutur til samkomulags. (PHalld: Ætli það sé svo einfalt að ná góðum árangri með lögþvinguðu skipulagi?). Já, það er afareinfalt. Ég kynnti mér það í fyrra bæði í Osló og Kaupmannahöfn. Norskir bændur í nágrenni við Osló fengu 12 aur. meira fyrir hvern mjólkurlítra heldur en þeir framleiðendur, sem seldu mjólk til Kaupmannahafnar. Og var það eingöngu þakkað hinu lögbundna skipulagi á mjólkursölunni í Osló. En útsöluverðið á mjólkinni var hið sama í báðum borgunum. Mennirnir eru nú einu sinni svo gerðir og gallaðir, að það er örðugt með frjálsum samtökum að koma í framkvæmd breyt., sem horfa til bóta, jafnvel þó þær liggi í augum uppi. Þess vegna verður oft að knýja þær fram með löggjöf.

Hv. 4. þm. Reykv. var eitthvað að snúa út úr því, sem ég sagði, að mjólkurframleiðendur í umhverfi bæjarins mundu eftir frv. fá einkarétt á nýmjólkursölunni í bæinn, og spurði hann, hvort ég ætlaði að veita þeim þann rétt. En það, sem ég átti við með þessu, var það, að ef þessi lög yrðu samþ., þá fengju þessir mjólkurframleiðendur löghelgaðan einkarétt til þessarar sölu til einstaklinga í bænum og gætu notað sér hann. Nú hafa þeir að vísu þennan rétt eins og aðrir, en þegar þetta frv. er orðið að lögum, þá verða þeir einir um hann.

Hv. 4. þm. Reykv. sagði, að með þessu frv. væri lagður þungbær skattur á mjólkurframleiðendur í bænum, sem næmi 50 kr. á hverja mjólkandi kú, og taldi það óréttlátt í hæsta lagi; en ég vil benda honum á, að með samkomulagi um framboð og sölu á mjólkinni í bænum, þá er þessi skattur fljótur að koma inn aftur með öruggari sölu og tryggara verðlagi mjólkurinnar.

Hv. þm. G.-K. gerði nokkra grein fyrir því, eftir hvaða reglum mjólkurverðið yrði reiknað, og hvernig hægt væri að finna út fast verð á mjólkinni í hlutfalli við framleiðslukostnaðinn. Það voru útbúnar fastar reglur fyrir þessu í fyrra og mjólkurverðið reiknað eftir automatiskum mælikvarða. Ég geri ráð fyrir, að það verði ákveðið eftir áliti þeirrar nefndar, sem um það á að fjalla samkv. frv. — og ákvörðun sína byggir n. á útreikningi nokkurra aðalfaktora framleiðslukostnaðarins, svo sem kaupgjaldi, vöxtum af stofnfé búsins, kostnaði við áburðar- og fóðurbætiskaup o. s. frv. N. finnur svo út sameiginlega verðvísitölu þessara aðalflokka, sem hækkar eða lækkar af sjálfu sér frá ári til árs, eftir hinum almennu verðbreyt. á kostnaðarliðum búrekstrarins. Ég er sannfærður um, að hér er fundinn góður og réttlátur verðmælir, sem ákveður hæfilegt og sanngjarnt verð á mjólkinni, er allir geta sætt sig við.

Ég ætla svo ekki að fara lengra út í þetta mál að sinni, en býst við því eins og hv. þm. G.-K., að þegar hv. 4. þm. Reykv. er búinn að kynna sér þetta mál betur, þá muni mótstaða hans gegn því minnka að sama skapi.