13.05.1933
Neðri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2564 í B-deild Alþingistíðinda. (4133)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Margt af því, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði, kom á einn eða annan hátt fram í ræðu hv. 4. þm. Reykv., en það eru sérstaklega tvö atriði í ræðu þessa hv. þm., sem ég verð að svara. Hann var að andmæla því, að búðafjöldinn í bænum hefði veruleg áhrif á mjólkurverðið. Búðarleigan sjálf er þó alltaf útgjaldaliður, sem eykst eftir því, sem fleiri búðir eru teknar á leigu til þess að selja sama magn af vöru. Hann vildi segja, að það kæmi í sama stað niður fyrir þá, sem framleiddu, hvort seldir væru 1000 lítrar á einum stað eða tíu stöðum, ef þeir borguðu þessa 10 aur. á lítrann. Þetta er rétt, en ég vil benda hv. þm. á, ef hann ekki veit, hver gangurinn hefir verið í þessu máli. Við skulum segja, að það hafi verið sett upp búð í einhverri götu hér í bænum og borgaðir 5 aur. fyrir seldan litra. Nú eru þeir tímar ársins, þegar mikið berst að af mjólk og hver keppir við annan. Þá kem ég sem mjólkurframleiðandi til nágranna þessarar búðar og segi: Ef þú vilt setja upp mjólkurbúð í þínu húsi, skal ég borga þér 6 aur. fyrir lítrann. Maðurinn gerir það og fær 6 aur. fyrir lítrann. Við það minnkar mjólkursalan hjá hinum, hann kvartar undan því og þarf líka að fá 6 aur. Svo kemur þriðji framleiðandinn og býður 7 aur. Afleiðingin verður sú, að hinir báðir verða að hækka sitt sölugjald upp í 7 aur. Þó að ekki sé keppt um að setja mjólkina niður, þá er keppt um búðirnar með því að láta meira og meira sölugjald. Það verð, sem bændur nú fá, er orðið svo lágt, að þeir fá naumast risið undir framleiðslunni lengur. Það hefir farið um milliliðina í mjólkursölunni eins og um apann, sem átti að skipta eplinu fyrir kettina; hann beit alltaf meira og meira af því, þangað til mestur hlutinn var kominn ofan í hann sjálfan.

Þá minntist hv. 3. þm. Reykv. á verðjöfnunarsjóðinn og sagði, að það væri sama og að koma á kúgun og fjárdrætti að stofna til hans. Mætist þarna hjá hv. þm. misskilningur og illgirni. Það hefir verið svo um mjólkursölu hér í bæ, að á sumum tímum berst svo mikið að af mjólk, að henni verður ekki komið út, og verður þá að búa til úr henni skyr og annað, sem gefur miklu minni arð. Lendir þannig meiri eða minni vinnslu-„skattur“ á öllum mjólkurframleiðendum. Þetta mikla framboð á mjólk stafar meðfram af því, að þessi nýju mjólkurbú austanfjalls gefa félögum sínum betri aðstöðu til að selja mjólkurframleiðslu sína hér en áður. Nú hefir orðið samkomulag um það, að búin eystra víki af mjólkurmarkaðinum þá tíma, er nóg berst að af mjólk hér í bænum úr nærsveitunum, en framleiða í þess stað skyr, rjóma o. s. frv. Þau vilja svo fá uppbót fyrir þetta, og á hún að renna í verðjöfnunarsjóð. Er því ekki hægt að segja, að þeir, sem stunda mjólkurframleiðslu hér í bænum, fái ekki neitt fyrir þetta framlag. Þeim er gefinn frjáls markaður um tíma, og fá þeir þannig fullt verð fyrir vöru sína, í stað þess að þeir yrðu annars að verðfella hana. Er þetta alveg heilbrigt skipulag. Slíkt skipulag getur ekki skapazt nema á þeim grundvelli, að báðir aðilar jafni á milli sín hagræði og óhagræði. (Forseti: Þetta átti aðeins að vera stutt athugasemd). Ég verð að tala ofurlítið um hið háa verð á mjólk, sem hv. þm. minntist á. Ég er ekkert hræddur um það, að framleiðendur muni neyta aðstöðu sinnar til þess að hækka mjólkurverð upp úr öllu valdi. Þó þótti mér rétt, að sett væri inn í frv. atriði, sem fyrirbyggði allan ótta um það. Það segir sig sjálft, að hvaða reglur, sem upp yrðu teknar um verðútreikning mjólkurinnar, þá yrði n. sú, sem þarna starfaði, undir svo harðri pressu frá neytendunum, að um mjólkurokur gæti aldrei orðið að ræða.