18.05.1933
Neðri deild: 77. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2573 í B-deild Alþingistíðinda. (4143)
186. mál, sala mjólkur og rjóma
Sveinbjörn Högnason [óyfirl.]:
Ég er hv. síðasta ræðumanni ósamþykkur um það, að hér sé ekki um verulega bót að ræða, ef rétt er á haldið. Ég held, að mótstaða hans gegn frv. stafi að skilningsleysi hans á þeirri samvinnu og samtökum, sem bændur bindast til að jafna aðstöðumuninn sín á milli. Hinsvegar er mér ljóst, að hér er á ferðinni frv., sem grípur svo inn í atvinnuhætti og atvinnurekstur manna á stórum svæðum, að varlega verður að fara með þessi ákvæði og sjá svo til, að sem fæstir verði þar fyrir verulegum skakkaföllum, um leið og 1. eru framkvæmd.
Það er ekki að öllu leyti rétt, að með samþykkt þessara 1. sé að því stefnt, að allir verði með í þessum samtökum, því að þess verður að geta, að það eru ekki svo fáir framleiðendur, sem geta ekki verið með. Það eru því miður ekki komnar enn svo góðar samgöngur út um sveitir landsins, að allar sveitir geti séð sér fært að vera með í þessum sölusamtökum allan tíma ársins. Þess vegna verður að gæta þess, að þessir menn, sem minnst hefir verið gert fyrir af því opinbera, sem versta hafa vegina og erfiðast eiga með að koma afurðum sínum í verð, verði ekki með lagasetningu útilokaðir frá að nota sér þá litlu sölumöguleika, sem þeir nú hafa. Af þessum ástæðum höfum við nokkrir þm. borið fram brtt. um að fella rjómann burt úr frv. Það er vitað, að á þessu svæði eru nokkur rjómabú starfandi, og hafa þau haft talsverðan hagnað af að selja rjómann beint á markaðinn. Ennfremur hefir þessi markaður verið notaður í sumum þeim sveitum, sem geta ekki aðstöðu sinnar vegna verið í mjólkurbúunum. Ég held því, að það sé varhugavert og órétt að loka markaðinum með öllu fyrir þessum mönnum. Ég er sannfærður um það, að þessi samtök eru nauðsynleg fyrir alla þá, sem að þeim geta staðið, en það verður að reyna líka að sjá rétti þeirra manna borgið, sem ekki geta verið með.
Ég get ómögulega fallizt á þá röksemdafærslu hv. þm. Mýr., að frv. sé einskis virði, ef ákvæði þess taka aðeins til mjólkurinnar. Ég held, eins og hann sagði líka sjálfur, að mjólkin sé aðalatriðið, og þó að ekki sé hægt undir eins að komast alla leið með þessa skipulagningu, þá er það þó stór sigur fyrir þessi samtök, að fá þessi ákvæði um mjólkursöluna.
Ég gæti vel fallizt á, að málinu væri miðlað á annan hátt og reynt að komast að einhverju samkomulagi, áður en gengið er til atkvæða. Hefði ég því helzt óskað, að málið væri tekið af dagskrá að þessu sinni, ef hægt væri að finna þá lausn, sem allir gætu unað við.
Þá hefir það verið tekið til greina að nokkru leyti, en þó ekki öllu, að færa út takmörk sölusvæðisins, en það hefir þó litla þýðingu, þar sem það væri ekki yfir allt það sama svæði, sem gæti selt mjólk til Rvíkur. Þess vegna hefi ég borið fram þá brtt., að mjólkurbú megi vera 120 km. frá sölustað og félagar þeirra 200 km. frá sölustað, og mundi það ná til nokkurnveginn allra þeirra, sem aðstöðu hafa til að selja mjólk til Rvíkur. (StgrS: Væri ekki bezt, að það tæki yfir allt landið?) Það getur vel verið, að það væri æskilegast, og ef það væri mögulegt, mundi ég ekki setja mig á móti því.
Viðvíkjandi því, sem hv. 4. þm. Reykv., var að tala um, að þeir væru ranglæti beittir, sem næstir væru sölustaðnum, þá vil ég álíta, að það sé mjög á misskilningi byggt. Ég hygg, þar sem þessi skattur er svo lágur, aðeins 5%, að réttur þeirra, sem fjær búa, sé frekar fyrir borð borinn, því að þeir, sem nær búa, geta selt meira af mjólk sinni, en þeir, sem fjær búa, verða að vinna meira úr henni. Ég hygg, að þeir myndu sjálfir telja það ekki svo litla réttarbót fyrir sig, ef þeim væri tryggður betri aðgangur að markaði, og samkeppnin um hann frá þeim, sem fjær búa, yrði að einhverju leyti úr höndum þeirra dregin. Hinsvegar get ég sagt það sem mína skoðun, að það, sem ég áfellist í þessu frv., er, að það gengur ekki nógu langt í því, að meira sé ræktað af því landi, sem er bezt til þess fallið. Ég álít það þjóðfélagslega skakkt að gera það ekki, en hlaða undir þá ræktun, sem er langsamlega dýrust og getur ekki borið sig, þegar samgöngur batna til annara héraða. Það er réttast, að hver vara sé framleidd þar, sem hún er ódýrust og svarar bezt kostnaði að framleiða hana. Þar af leiðandi álít ég sjálfsagt, að löggjöfin miði að því, að það gangi fyrir að rækta þessi ágætlega ræktanlegu svæði austanfjalls, í stað þess að veita offjár til þess að ryðja holt og hraun umhverfis Rvík. En því miður er engu slíku að heilsa hér í þessu frv.
Ég skal ekki fjölyrða um þessi efni að sinni. Ég vil ekki styðja að því að eyðileggja þau þörfu samtök, sem hér eru á ferðinni. Ég vil því enn mælast til þess, að þetta mál verði tekið út af dagskrá og okkur flm. till. verði gefinn kostur á að tala við ýmsa aðilja málsins og sjá, hvort ekki tekst að tryggja það, að þeir, sem ekki hafa aðstöðu til að vera með í þessu til að byrja með, yrðu ekki algerlega útilokaðir frá því að koma afurðum sínum í verð.