31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2591 í B-deild Alþingistíðinda. (4158)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Frsm. (Jón Jónsson):

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er flutt eftir tilmælum Mjólkurbandalags Suðurlands, en í því munu vera öll mjólkurfélög á Suðurlandi. Markmið þess er að bæta hollustuhætti við meðferð mjólkur og ennfremur að styðja að skipulagningu mjólkursölu hér um slóðir. Því er svo ákveðið hér í 1. gr. frv., að ekki sé leyfilegt að selja mjólk öðruvísi en gerilsneydda. Undanþegin því ákvæði eru þó fullkomnustu mjólkurbú, sem að dómi atvmrh. hafa tæki til þess að hreinsa mjólkina á annan hátt jafngildan. Ennfremur er svo nefnd barnamjólk undanþegin þessu ákvæði, og sú mjólk, sem framleidd er innan kaupstaðanna til sölu þar á staðnum. Þessi ákvæði eiga að tryggja hollustuhætti mjólkurinnar.

Í 2. gr. er mælt svo fyrir, að mjólkurframleiðendur geti gert með sér samþykktir um sölu mjólkur. Þær samþykktir verða að ná til allrar þeirrar mjólkur, sem seld er á því sölusvæði. Til þess að gera slíka samþykkt verður að halda fund, og þangað verða öll mjólkurbú á svæðinu að senda fulltrúa. Og samþykkt þessi öðlast ekki gildi, nema að henni standi fulltrúar, sem samtals hafa yfir að ráða a. m. k. 75% af samanlögðu mjólkurmagni allra búanna. Aftur á móti þarf miklu minni hundraðshluta til þess að nema slíka samþykkt úr gildi, eða ekki nema 35%.

Þá kemur nú að því atriði, sem einna helzt mun um deilt, en það er ákvæði 3. gr. um verðjöfnunarsjóð. Þesskonar sjóði skal stofna innan hvers sölusvæðis, og á í hann að renna ákveðið gjald af hverjum mjólkurlítra, sem seldur er á svæðinu. Þetta gjald má aldrei verða hærra en 5% af útsöluverði gerilsneyddrar mjólkur. Þetta gjald verða allir að greiða, líka þeir, sem framleiða mjólk innan kaupstaðanna og selja hana beint af heimilum sínum til neytendanna, og er þá miðað við 2500 lítra ársnyt úr hverri kú. Þetta skipulag á að tryggja framleiðendum hærra verð fyrir mjólkina, þó að neytendur þurfi ekki að borga meira fyrir hana en nú er. Ég skal nefna dæmi; sem sýnir yfirburði þessa skipulags yfir það núverandi. Nú er það algengt, að menn fyrir austan fjall senda hingað mjólk sína, þótt á því séu ýmsir erfiðleikar. En á sama tíma verða mjólkurframleiðendur í nærsveitum Rvíkur að vinna úr sinni mjólk, af því að markaður er ekki nógur í Rvík. Úr þessum vandræðum yrði leyst, ef frv. þetta næði fram að ganga. Þá gætu austansveitarmenn unnið úr sinni mjólk, en látið nærsveitarmenn sitja fyrir á mjólkurmarkaði Rvíkur. Verðjöfnunarsjóður bætti svo austanmönnum upp hallann.

N. hefir komizt að þeirri niðurstöðu, að þótt einstaka manni finnist þetta nærgöngult hagsmunum sínum, þá mæli svo mikil sanngirni með því, að hún leggur til, að frv. verði samþ. með einni lítilli breyt. Hún er á þá leið, að orðið „fullkomin“ falli úr 1. gr. frv. Sú brtt. er gerð með till. til mjólkurframleiðslu á Hvanneyri. Þar hefir verið framleitt skyr og aðrar mjólkurafurðir um langan tíma, sem mjög þykja að ágætum. En n. var ekki viss um það, hvort Hvanneyrarbúið gæti talizt fullkomið mjólkurbú í strangasta nútímaskilningi, þó að framleiðsla sé þar öll í bezta lagi. — N. leggur sem sagt til, að frv. verði samþ. með þessari smábreyt.