31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2598 í B-deild Alþingistíðinda. (4161)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Frsm. (Jón Jónsson):

Hv. 1. landsk., sem jafnframt er borgarstjóri Rvíkur, hefir flutt langt erindi til þess að sýna fram á, að með þessu frv. sé stofnað til mesta gerræðis, en ég fæ ekki séð, að svo mikil brögð séu að því sem hann vill vera láta. Hann fetti fyrst fingur út í ákvæði 1. gr., um að eingöngu megi selja gerilsneydda mjólk, en seinna sagði hann reyndar, að rétt væri að hafa mjólkina gerilsneydda, en hann vildi bara hafa einhverja sérstaka aðferð ákveðna. Hann bauðst til þess að bera sig saman við n. um þetta, og þakka ég honum það, því að ég játa fúslega, að á því sviði er ég enginn fræðimaður, og þykir mér gott að fá hans ráð um þetta; annars býst ég ekki við, að þetta ákvæði muni valda ágreiningi.

Þá er það, hvort mjólkurframleiðendum sé heimilt að setja með sér skipulagðan félagsskap, sem allir verða að lúta. Það álít ég alveg sjálfsagða ráðstöfun til þess að tryggja þá atvinnugr. En hitt, að þeim sé falið einveldi í þessum efnum, get ég ekki sagt, að sé rétt hjá hv. þm. Í því sambandi minntist hann á samninga á milli beggja aðilja; það er auðvitað ekki nema gott, ef slíkar samningatilraunir hafa farið fram, en árangur er enginn sýnilegur af þeim. Eina atriðið, sem ég býst við, að gæti orkað tvímælis, er skatturinn. Það má e. t. v. til sanns vegar færa, að þetta sé fullhátt gjald, en þegar í staðinn kemur betra skipulag á mjólkursöluna og betri möguleikar skapast, þá er ekki nema eðlilegt og sanngjarnt, að þeir taki á sig eitthvað af byrðunum, eins og aðrir, sem njóta góðs af þessu, og lögtaksrétturinn er alveg sjálfsagður. En sem sagt getur vel verið, að gjaldið sé of hátt, og ég vildi gjarnan bera mig saman við hv. 1. landsk. til 3. umr. — En því, að þetta veiti Rvík engar hagsbætur, vil ég svara, að það tryggir betri vörur og öruggari markað, þar eð þeir, sem fjær búa, eru útilokaðir frá samkeppni. Auk þess er bænum með því tryggð nóg mjólk öllum stundum. Ég get sem sagt ekki fallizt á rök hv. 1. landsk., að málið sé með öllu óhæft, en einstök atriði frv. má taka til athugunar til 3. umr. Rökst. dagskránni get ég ekki verið samþykkur. Málið þolir ekki svo langa hvíld, og auk þess átti stjórnin aðeins að bera sig saman við kaupendur, en það nær vitanlega engri átt. Ég vona, að hv. d. hleypi málinu til 3. umr., og milli umr. má bera sig saman um einstök atriði.