31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2604 í B-deild Alþingistíðinda. (4164)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Jón Þorláksson [óyfirl.]:

Ég þarf ekki miklu að svara ræðu hv. frsm. Hann hafði nú ekki verið í deildinni nema að nokkru leyti, meðan ég talaði, og hafði því ekki andmæli fram að bera gegn því, sem ég hafði sagt, sem var sérstaklega í þá átt, að um hollustuhætti í meðferð nýmjólkur er þessi löggjöf ákaflega lítilfjörleg, enda er alls ekki tilætlunin að gera neitt í því efni með henni. Enda eru til önnur lagákvæði, sem heimila yfirvöldum nauðsynlegar aðgerðir á því sviði.

En hvað það snertir að skattleggja heimaframleiðslu til verðjöfnunar, þá hafði hv. þm. ekki önnur rök fram að bera en þau, að heimaframleiðslan kynni að geta notið góðs af samtökunum, og væri því ekki með öllu óréttmætt, að hún bæri eitthvert gjald. Ja, ég held nú ekki, að heimaframleiðslan geti haft neitt gott af samtökum þessum. Ef það helzt óbreytt, þá á líka aðstaða hinnar framleiðslunnar að vera hin sama og áður, en ég skal nefna einstök dæmi þess, hvernig þetta verkar á bónda einn hér í Rvík. Hann hefir 16 kýr og afkoma hans er þannig, að niðurjöfnunarnefndin hefir ekki treyst sér til að leggja á hann hærra útsvar en 10 kr. Hann býr við há gjöld að öðru leyti af landi sínu og fasteignum eins og allir, en eftir þessu frv. myndi hann eiga að snara út 800 kr. á ári til þessa verðjöfnunarsjóðs. Það er auðséð, að þessi bóndi fer yfir um, og ég efast um, að smábýlabúskapurinn hér við Rvík þoli þessar álögur, og a. m. k. staðhæfi ég hitt, að það er ekki nokkur sanngirni af löggjafarvaldinu að þvinga þessu upp á menn, ekki til neinna opinberra þarfa, heldur einungis til hagnaðar fyrir einhverja aðra framleiðendur í landinu.

Hv. 5. landsk. fór að tala um þetta mál og það fór nú heldur í mola eins og von var til. Hann minnti fyrst á það, að ég hefði fyrir nokkrum árum barizt fyrir bættum samgöngum milli Rvíkur og Suðurlandsundirlendisins og fært þá fram sem eina af mörgum röksemdum í þessu máli, að þetta yrði til þess að lækka mjólkurverðið í Rvík, vegna vaxandi framboðs. Nú hefir þetta farið svo, að samgöngubót í þá átt, sem ég barðist fyrir, hefir fengizt á annan hátt, og niðurstaðan er sú, að það er svo mikið framboð á ódýrri mjólk austan yfir fjall, að nú er hrópað á löggjafarvaldið til þess að verjast verðlækkun. Það er það, sem verið er að gera með þessu frv. Það á að halda uppi mjólkurverðinu í Rvík gagnvart þessu framboði austan að, sem bættar samgöngur hafa skapað. Nú er það álit margra manna, að það sé eðlilegt að taka sanngjarnt tillit til þeirra landsmanna, sem með miklum erfiðismunum voru búnir undir óhagstæðum skilyrðum að koma af stað mjólkurframleiðslu hér nærri bænum áður en samgöngubæturnar náðu til þess að auka framboðið austan að svo sem nú er orðið, og það er engin fyrirstaða á því hér í Rvík að líta með sanngirni á þeirra manna mál.

Hv. 5. landsk. vildi gera það að ádeiluefni á mig, að ég virtist vilja semja við Mjólkurfél. Rvíkur, sem hefir dýrasta framleiðslu á mjólkinni. En litlu síðar í ræðu sinni fór fyrir honum eins og vant er, af því að hann lætur yfirleitt ekki stjórnast af röksemdum og yfirvegun, heldur af aðstöðu sinni til þess manns, sem hann á orðastað við, að hann fór náttúrlega öfugu fram og viðurkenndi síðar í ræðu sinni, að það væri meiningin, að þeir, sem nærri byggju Rvík, í þeim eiginlegu nærsveitum, ættu eftir þessu skipulagi að fá mjólkursöluna, en svo ættu þeir að leggja á sig gjald til þess að hugnast dálítið hinum framleiðendunum lengra í burtu, í notum þess, að þeir hættu að flytja á markaðinn meiri mjólk en hentaði markaðinum. En um efni þessa máls, þá er mér sama og bæjarstj. Rvíkur er sama, hvort hún semur við framleiðendur af stærra eða smærra svæði utan bæjarins. Þeir geta komið sér saman um það eins og þeir eru bræður til, hve marga þeir taka inn fyrir samtökin, en því vil ég halda fram og halda föstu, að ekki verði verið með neina áreitni við mjólkurframleiðendur í bænum, þótt hinir vilji koma á einhverjum samtökum sín á milli.

Hv. 5. landsk. fór að tala um það, sem vel hefði getað átt við fyrir 20 árum, þegar hann var ungur, að í Rvík yxu börnin upp við svo mikinn mjólkurskort, að þeim væri af því hætta búin. Ég held, að þetta sé ekki á neinum verulegum rökum byggt nú orðið. Mér er sagt, að neyzla mjólkur hér í Rvík muni vera 6—7 millj. lítra á ári, og það er yfir 200 lítra á ári á hvert mannsbarn. Það má líta á búnaðarskýrslurnar úr sýslum landsins og gera upp, hve mikil mjólk komi þar á hvert mannsbarn, og þar sést, að það eru ekki öll landbúnaðarhéruð landsins, sem eiga kost á þetta mikilli mjólk. Hér er ekki meiri mjólkurskortur en víða annarsstaðar, ef þessi tala um hina almennu neyzlu er nærri sanni. — Þá fór hv. 5. landsk. að tala um verðið á mjólk hér í Rvík. Hafði hann hugsað sér að taka meðaltal af mjólkurverði í þrem stærstu höfuðborgum næstu landa og lét það gilda fyrir Hafnarfjörð og Rvík. En hitt þótti honum fjarstæða, að miða þetta við framleiðslukostnað, eins og ég hafði orðað, að bæjarstjórn Rvíkur hefði dottið í hug. Mér finnst nú satt að segja höfð endaskipti á hlutunum, ef réttara er að miða við verðlag fjarlægra landa en framleiðslukostnaðinn hér heima. Hann sagði, að þetta verð væri 25—30 aur. á mjólkurlítra, og taldi það lægra en mjólkurverð hér í Rvík nú sem stendur. En það veit ég, að honum er vel kunnugt um, að mikið af mjólk hér í bænum er selt fyrir 35—36 aur. og eitthvað selt þar fyrir neðan. En ég hygg, að fastir viðskiptamenn um mjólkurkaup greiði yfirleitt ekki meira en 36 aur. fyrir hvern lítra, og ég veit, að sumir greiða lægra.

Ég get að svo stöddu lokið máli mínu um þetta. Ef farið hefði verið fram á það að lögleiða fyrir kaupstaði og kauptún ákvæði 1. gr. frv., þá hefði mér fundizt, að vel mætti taka það til athugunar, jafnvel þótt það geti ekki verið neitt kappsmál fyrir landsmenn eftir því sem „teknik“ nútímans er háttað, að mjólkin skuli seld gerilsneydd. Þar sem hægt er að koma henni óskemmdri til neytenda án þess, þá er ákvæðið til hins verra. En ákvæði síðari gr. hygg ég ótímabær. Þau eru í raun og veru öll umbúðir um þetta gjald, sem á að ná af þeim gjaldendum, sem njóta markaðarins, til hagsbóta fyrir hina, sem ekki sitja að honum. Og við þetta hefi ég ekki heldur neitt sérstakt að athuga, ef ekki væri sýnd sú ósanngirni, að mér sýnist, að heimta þetta gjald af heimamönnum sjálfum, og eins og nú er ástatt hér í Rvík, getur það ekki komið til mála, að þetta gjald verði greitt. Mjólkurframleiðslan hér í Rvík þolir það ekki. Ég vil þess vegna nú við þessa 2. umr. fyrir mitt leyti greiða atkv. með rökst. dagskrá frá hv. þm. Hafnf., og ætti það að geta leitt til viðunandi lausnar á þessu máli, en fáist hún ekki samþ., greiði ég atkv. á móti öðrum greinum en þeirri fyrstu.