31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2610 í B-deild Alþingistíðinda. (4166)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Bjarni Snæbjörnsson [óyfirl.]:

Hv. frsm. er ekki við, svo að ég ætla að geyma að svara því, sem hann sagði. Þegar farið er að athuga þetta frv. og tilgang þess, finnur maður það fljótlega, að það eru skiptar skoðanir meðal þeirra manna, sem mæla með frv. Ég vil álíta, að það séu skiptar skoðanir hjá hv. frsm. og hv. 2. þm. Árn. Hv. frsm. segir, að þetta eigi að vera til þess að bæta fyrir framleiðendum á þann hátt, að þeir eigi að fá meira fyrir sína mjólk. Hv. 2. þm. Árn. segir, að þetta eigi að verða til þess að lækka mjólkurverðið (JónJ: Þetta getur farið saman). Ef mjólkurverðið lækkar, hlýtur það að verða minna, sem framleiðendurnir í kaupstöðunum fá fyrir sína mjólk. Tilgangurinn er ekki sá, að lækka mjólkurverðið, heldur að bændurnir fyrir austan fjall fái meira fyrir sína mjólk en þeir fá nú. Ég skal geta þess, að þetta, sem hv. 3. landsk. er að tala um, getur ekki átt við mjólkurframleiðendurna í Hafnarfirði, vegna þess að þeir hafa engan kostnað af sinni mjólkursölu. Þeir senda mjólkina beint frá húsum sínum til neytendanna og gera það sjálfir eða börn þeirra. Ég vil segja til réttlætingar minni dagskrártill., að einu rökin, sem færð eru á móti henni, eru þau, að stj. eigi aðeins að snúa sér til annars aðiljans. Ég efast ekki um, að atvmrh., sem nú er og sennilega verður til næsta þings, muni sjá um, að fengin sé umsögn hins aðiljans og fullt tillit verði tekið til beggja aðilja. Ef þessu á að flumbra af nú á þessum síðustu dögum þingsins, finnst mér það hreint og beint ekki sæmandi þinginu frekar en hv. 3. landsk. fannst sæmandi að flumbra öðru frv. af svona síðustu daga þingsins. Einn af formælendum þessa frv., hv. 5. landsk., sagði, að þetta frv. væri ekki frekar fullkomið en önnur mannanna verk, nema síður væri. Það kemur svipað fram hjá honum eins og kom fram hjá hv. 2. þm. Árn. í öðru máli, að það væri í sjálfu sér rétt að samþ. frv. til þess að það væri hægt að gera breyt. á því á næsta þingi. Ég held satt að segja, að það væri betra að fresta málinu og athuga það betur, svo að hægt sé að fá sem heppilegasta og bezta úrlausn á málinu, og hinn aðilinn fái að bera hönd fyrir höfuð sér.

Hv. 2. þm. Árn. minntist á það í sinni ræðu, að sumt í þessu máli væri dálítið svipað öðru máli, sem hefði verið hér til umr. á fundinum í gær. Hann kvað svo að orði um það mál, að það væri hreinn og beinn nauðasamningur. Þar sem hann álítur þetta mál vera sama eðlis, er það samningur, sem er verið að neyða upp á annan aðilann að honum fornspurðum, án hans vilja og vitundar. —Ég get ekki annað skilið en að hv. dm. megi vera ánægðir með þá lausn málsins, að málinu sé frestað til næsta þings og að leitað sé álits hins aðiljans, svo að bezta og varanlegasta lausnin megi verða á málinu og ekki þurfi að breyta því á næsta þingi.

Hv. 3. landsk. minntist á það, að ákvæði 3. gr. væru varhugaverð. Hann játaði, að gjaldið, sem lagt er á framleiðendurna í kaupstöðunum, væri varhugavert. Ég vil taka það fram, af því að það stendur svo á, að frsm. landbn. Nd. er staddur hér í d., að hann áleit einmitt þetta ákvæði um verðjöfnunarsjóðinn vera eitt af aðalatriðunum í frv. Ég vonast til þess, að hann geti látið einhvern hv. þdm. vita, ef ég hefi farið rangi með. Hann áleit það vera aðalatriði, að þetta verðjöfnunargjald frá framleiðendunum í kaupstöðunum fengi að halda sér. Líka hefir verið drepið á það, að bændurnir austanfjalls væru búnir að bíða svo lengi eftir því að fá eitthvert samkomulag við bæjarstjórn Rvíkur. Ég álít, að með minni dagskrártill. komist frekar skriður á málið og að það þurfi ekki að bíða lengur en til næsta þings, að gengið verði til endanlegra lykta í þessu máli. Hv. 2. þm. Árn. sagði, að þetta frv. og einmitt ákvæðið um verðjöfnunina væri byggt á samkomulagi milli Mjólkurfél. Rvíkur og búanna austanfjalls. Mér finnst það sjálfsagður hlutur, að þetta atriði sé þeirra á milli algerlega, og að Mjólkurfél. Rvíkur greiddi búunum fríviljuglega þennan 5% skatt, en léti framleiðendurna í kaupstöðunum vera lausa við skattinn. Það kemur Mjólkurfél. Rvíkur talsvert til góða, ef mjólkurbúin austanfjalls vinna úr sinni mjólk, svo að mér finnst sjálfsagt, að þetta verði samningur þeirra á milli, og að það þurfi ekki þeirrar löggjafar með, sem hér er farið fram á í þessu frv. Hvernig svo sem ég velti þessu máli fyrir mér, get ég ekki skilið annan tilgang með þessu frv. en þann, að það sé ekki meiningin að lækka mjólkurverðið fyrir neytendurna, heldur sé það eingöngu sprottið af því að fá hærra mjólkurverð fyrir þá, sem nú hafa erfiðasta aðstöðuna og hv. 3. landsk. sagði, að væru að rembast við að flytja mjólkina hingað að vetrarlagi. Það er verið að bæta aðstöðu þessara manna með frv. því, sem hér liggur fyrir. Ég vona, að hv. dm. sjái, að það er svo margt athugavert í þessu frv., og einnig hefir verið sagt, að frv. væri ófullkomið í mesta máta, og þá held ég, að sé ekki bezta lausnin að flumbra þessu máli af síðustu daga þingsins, heldur sé það látið bíða til næsta þings og verði þá undirbúið rækilega, svo það mætti verða til frambúðar og báðum aðilum til gagns.