03.06.1933
Neðri deild: 94. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2616 í B-deild Alþingistíðinda. (4178)
186. mál, sala mjólkur og rjóma
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):
Þetta frv. hefir orðið fyrir allmiklum breyt. frá því það fór frá okkur fyrir nokkrum dögum. Ég býst við, að hv. þdm. taki eftir því, að felldar hafa verið niður úr frv. allar greinarnar nema sú fyrsta og sú síðasta.
Ég verð að segja það, að ég tel það mjög miður farið, hver afdrif þessa frv. eru orðin, þrátt fyrir það, þó maður teldi tryggan framgang þess eftir 2. umr. í Ed. En sannleikurinn er sá, að bæjarstjórn Rvíkur hefir sett sig algerlega á móti frv. og nú fyrir nokkrum dögum samþ. mjög eindregin og svo að segja einróma andmæli gegn því, en þó að ég sé sannfærður um, að þetta er gott mál og að frv. muni fyrr eða síðar verða að lögum í líku formi og það var afgreitt frá þessari hv. d., þá lít ég svo á, að í þetta skipti verði að láta nægja þann hálfa sigur, sem fenginn er með frv. eins og það er nú orðið. Mér er kunnugt um það, að mjólkurbúin og aðrir þeir aðilar, sem að þessu frv. standa, ætla að sætta sig við þessi málalok að sinni.