18.02.1933
Neðri deild: 4. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í C-deild Alþingistíðinda. (4183)
27. mál, fiskframleiðslu ársins 1933
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Það eru ekki nema örfáir dagar síðan ég sá auglýsingu um þetta atriði, er hv. þm. Seyðf. gat um, og ég hefi alls ekki forvitnazt um, hvort nokkur svör eru komin. En mér þykir ólíklegt, að komin séu svör frá öllum þeim, sem vænta má svars frá.