18.02.1933
Neðri deild: 4. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í C-deild Alþingistíðinda. (4187)

27. mál, fiskframleiðslu ársins 1933

Haraldur Guðmundsson:

Mér finnst hv. þm. N.-Ísf. gera flm. mikinn greiða með því að tala eins og sá, sem þekkinguna og valdið hefir, en flm. veit ekki nokkurn skapaðan hlut. Hv. þm. N.-Ísf. segir ástæðurnar fyrir útgáfu bráðabirgðal. fallnar burt og að l. hafi vakið óhug og verkað illa. Hvað meinar hæstv. dómsmrh. með því að vera að láta okkur samþ. hér slík l., ef burt eru fallnar ástæðurnar fyrir því? Þetta er ljóta ástandið! Það hefði ekki veitt af, að hæstv. dómsmrh. hefði verið dálítið forvitnari, ef þessar upplýsingar frá hv. þm. N.-Ísf. eru gulláreiðanlegar - sem ég ætla nú ekki að fullyrða neitt um. Hv. þm. fullyrðir ennfremur, að allt bendi til, að Sölusambandið muni starfa áfram á sama grundvelli og verið hefir. Ég get þakkað hv. þm. fyrir svörin, því að eftir þessu var ég að grennslast nú.