30.05.1933
Neðri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í C-deild Alþingistíðinda. (4236)
48. mál, lögreglustjóra í Bolungavík
Sveinbjörn Högnason:
Hv. þm. talaði um það, að prestar hefðu fengið skrifstofufé. Ég hygg, að það hafi verið fáir prestar, sem hafa fengið skrifstofufé; það var aðeins nokkur hundruð kr. ferðakostnaður. En ég vil minna hv. þm. á það, að þá var ekki verið að tala um prestafjölgun. Hér er um að ræða stórkostlega embættafjölgun, og ég mun standa á móti því í lengstu lög.
Hvað því viðvíkur, að bæjarfógetinn á Ísafirði greiði meira til skrifstofuhalds síns en 13 þús. kr., þá hygg ég, að það sé algerlega órannsakað, hvort skrifstofuféð er ekki nægilegt.
Þá vildi ég benda hv. þm. á það, að þó hér í Rvík séu 3 menn til að sjá um þetta starf, þá er það sízt meira en þó á Ísafirði og Bolungavík sé einn.
Hvað því viðvíkur, að borgararnir hætti að vilja inna þessa skyldu af hendi, þá er skyldan ekki lögð á borgarana, heldur bæjarfógetana, og það virðist vera fullkomlega fyrir því séð af ríkisins hálfu.