07.03.1933
Neðri deild: 18. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í C-deild Alþingistíðinda. (4286)
54. mál, vörslu opinberra sjóða
Magnús Jónsson:
Í 1. gr. frv. þessa er talað um alla opinbera sjóði, sem stofnaðir séu með lögum eða hafi konunglegar skipulagsskrár. Út af þessu vil ég leyfa mér að bera fram þá fyrirspurn, hvort það sé gert ráð fyrir, að sjóðir opinberra stofnana, eins og t. d. háskólans, falli hér undir. Sjóðir háskólans eru algerlega undir stjórn háskólaráðsins og endurskoðaðir á hverju ári. Ég sé því alls ekki, hvaða ástæða gæti verið fyrir því að taka sjóðina undan háskólanum og afhenda þá í hendur einhverjum pólitískum ráðh., eða deild í stjórnarráðinu.
Þá má og nefna fleiri sjóði, t. d. sjóði, sem eru undir stjórn biskups, sjóði, sem hann ráðstafar og birtir reikninga fyrir.
Annars verð ég að segja það, að mér finnst engin ástæða til að setja sérstök lög um þetta. Aðalatriðið er, að sjóðunum sé vel stjórnað, þeir séu endurskoðaðir og reikningar þeirra birtir almenningi. Að einn ráðh. sé betur fær um að stjórna þeim en ýmsir aðrir mætir menn, er fjarstæða ein og ekkert annað.
Þá eru í 4. gr. ákvæði um það, að ríkisendurskoðunin skuli hafa á hendi nákvæma yfirendurskoðun allra sjóða. Ég veit nú hreint ekki, hvort hér er átt við hina umboðslegu endurskoðun, sem fer fram í stjórnarráðinu, eða endurskoðun þá, sem framkvæmd er af trúnaðarmönnum Alþingis. Til þess að það komi skýrt fram, við hvora endurskoðunina er átt, þarf að breyta orðalagi greinarinnar. Sé t. d. átt við endurskoðun trúnaðarmanna Alþingis, fæ ég ekki séð, hvernig trúnaðarmennirnir eiga að geta endurskoðað þann fjölda sjóða, sem hér er um að ræða, nema þá því aðeins, að þeim verði ætlaður miklu lengri tími til endurskoðunarinnar en verið hefir til þessa.
Þá þarf ég tæplega að taka það fram, að mér finnst ákvæði 3. gr. um, að rifta megi þeim samningum, er gerðir hafa verið, alveg óhæfilegt. Annars er það svo, að sé tilgangur frv. þessa áhugi fyrir sjóðunum frekar en áframhald af eldhúsdegi þeim, sem byrjaður hefir verið hér í deildinni út af Reykjahlíðarkaupunum, þá virðist mér í sjálfu sér ekkert við það að athuga, þó að það komi fram. En það verð ég að telja með öllu ógerlegt að breyta samningum, sem gerðir hafa verið. Og það verð ég að segja, að ég er ekki viss um, að í nýrri lagasetningu um þetta efni felist mikil trygging umfram það, sem nú er. Aðalatriðið er, að þeir, sem með sjóðina fara, ræki vel og samvizkusamlega starf sitt.
Að síðustu vil ég taka það fram, að mér finnst eðlilegra, að frv. þetta fari til fjhn. heldur en til allshn., eins og stungið hefir verið upp á.