07.03.1933
Neðri deild: 18. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í C-deild Alþingistíðinda. (4291)

54. mál, vörslu opinberra sjóða

Magnús Jónsson:

Það hefir komið fram till. frá hinum sömu mönnum og flytja þetta frv. um, að aflað verði nákvæmra skýrslna um það, hversu margir opinberir sjóðir séu í landinu, og hversu sé um þá háttað. Ég held það hefði verið heppilegra fyrir hv. flm. að bíða með þetta frv. þangað til þær skýrslur voru fengnar, svo þeir gætu farið eitthvað nærri um það, hvað þeir eru að fara með frv., því það er auðheyrt á 1. flm., að þeir eru ekki kunnugir því efni, sem frv. fjallar um. Hvað málið sjálft snertir, er það þegar ljóst, að það er talsvert flókið, og því hefði bersýnilega verið hentugra að fá sem ýtarlegastar upplýsingar um sjóðina, svo ekki þyrfti að óttast, að um þá yrði sett í hálfgerðri blindni lög, er síðar reyndust kannske ósanngjörn eða á einhvern hátt óhentug. Ég held því, að bezta lausnin á málinu eins og það nú liggur fyrir væri sú, að afgreiða það með rökst. dagskrá, þar sem ýtt væri á stj. með að láta hagstofuna gera nákvæma opinbera skýrslu um alla opinbera sjóði í landinu.

Hv. 1. flm. hélt því fram, að það væri illa farið, að opinberir sjóðir væru í höndum margra manna í landinu, því hitt væri miklu tryggara, að þeim væri öllum safnað á eina hönd. Það er alveg eins og hann taki ekki eftir því, að hér er eitt atriði í vegi, sem alls ekki verður gengið framhjá í þessu efni, en það er vilji gefendanna og fyrirmæli um meðferð sjóðanna. Það er því bókstaflega ekki hægt að setja lög um rekstur og eftirlit þessara sjóða á svipaðan hátt og um sparisjóðina. Ef. t. d. einhver gefandi mælir svo fyrir, að hér eða þar skuli geyma sjóðinn og svo eða svo skuli ávaxta hann og verja honum, þá dugir ekki annað en fylgja þeim fyrirmælum, jafnvel þó þau væru ekki eins tryggileg og hugsazt gæti. Ef t. d. tilskilið er í skipulagsskrá, að hreppsnefnd í einhverjum vissum hreppi skuli hafa yfirumsjón með sjóðnum, þá þýðir ekki fyrir Alþingi að setja lög um, að fjmrh. skuli hafa það.

Það er afarþýðingarmikið, að fyrirmælum gefenda sé fylgt með festu og nákvæmni, því annað gæti haft þær afleiðingar, að einstaklingar vildu ekki hætta fé sínu til sjóðsstofnana, og væri það illa farið. Og því miður verður að viðurkenna það, að hér á landi hefir varfærni hins opinbera í þessum efnum ekki ætíð verið svo sterk sem skyldi. Í Englandi t. d. er afarstrangt eftirlit með því, að fyrirmælum skipulagsskránna sé samvizkusamlega og nákvæmlega fylgt, jafnvel hvað heimskuleg, sem þau kunna að vera. Ég get t. d. nefnt eitt lítið dæmi, er sýnir þetta. Það var málverkasafn, sem maður nokkur hafði gefið, og sömuleiðis lagt fram fé til þess að standa straum af húsnæði fyrir safnið og gæzlu. Safnið var til sýnis fyrir almenning, en svo einkennilega var fyrir mælt, að það var ekki opið nema örfáa mánuði ársins. Þetta ákvæði var bersýnilega tilgangslaust og sprottið af einhverri sérvizku gefandans, en því var nákvæmlega fylgt. Það þótti alveg sjálfsagt, og slík regla er falleg.

Með frv. þessu er gengið framhjá þessu atriði, en það er ekki rétt. Það er ekki rétt að leggja einn sjóð undir allt aðra yfirstjórn heldur en gefandinn hefir ætlazt til. (HV: Ráðh. á að gæta þess, að skipulagsskrár sjóða séu ekki brotnar). En það er gersamlega þýðingarlaust að beina sjóðunum undir umsjón ráðh., ef ráðh. á ekki að hafa neitt vald yfir þeim; þá eru þessi lög ekkert nema pappírsgagn, einskonar stáss, eins og sum þessi yfiryfirstörf, sem verið er að búa til.

Hv. þm. virtist misskilja fyrirspurn mína um sjóði háskólans og halda, að þar væri ekki um annað en sáttmálasjóð að ræða. En ég get frætt hann um það, að hér er um miklu fleiri sjóði að ræða; hver deild háskólans á sína sérstöku sjóði, en um þessa sjóði er árlega prentuð nákvæm skýrsla í árbók háskólans, sem allir eiga aðgang að, og verður ekki séð, hvað á að gera með sérstakt yfireftirlit með þeim sjóðum.

Þá er í 2. gr. frv. 2. lið fyrirmæli um, hvernig skuli geyma fé sjóða, það sem ekki sé geymt samkv. 1. lið sömu gr., og er þar sagt, að féð skuli ávaxta „í skuldabréfum og verðbréfum, tryggðum með ríkisábyrgð“. Mér skildist á hv. þm., að hann ganga út frá því, að veðdeildarbréfin væru alveg trygg eign, en það er nú svo, að ekki eru allir flokkar veðdeildarinnar tryggðir með ríkisábyrgð, og ég get vel hugsað mér, að í framtíðinni yrðu kannske opnaðir nýir flokkar veðdeildarbréfa, sem ekki væru tryggðir með ríkisábyrgð. Ríkisábyrgð á veðdeildarbréfum er ekki sett vegna veðdeildarinnar til þess að tryggja hana innanlands, heldur til þess að hægt sé að flagga með ábyrgðinni á erlendum markaði, en þetta getur gert óþægindi með framkvæmd þessarar gr., að sumir flokkar veðdeildarbréfa eru með ríkisábyrgð, en aðrir ekki.

Ég skal játa það, að ég skildi ekki hv. flm., þegar hann var að tala um það, hvernig sjóðirnir ættu að kaupa veðdeildarbréfin af stofnunum þeim, er gæfu þau út. Mér er ekki ljóst, hvernig hann hugsar sér, að hægt sé að halda fé sjóðanna þannig aðgreindu og ávaxta sérstaklega fé hvers eins, þannig að allt komi nákvæmlega rétt heim. Það yrði þá að hafa það eins og gamla fólkið hér áður, sem fór með aurana sína í kaupstaðinn til þess að kaupa fyrir þá ýmislegt. Það hafði þá aurana stundum í mörgum hólfum í buddunni og keypti vissar tegundir af vörum fyrir það, sem var í vissum hólfum. En ef eitthvað svipað fyrirkomulag á að vera á þessu, þá held ég, að ekki geti hjá því farið, að þetta verði allmikið verk, og vil ég drepa á þetta þeim mönnum til athugunar, sem væntanlega fá málið til meðferðar.

Ég get ekki að því gert, að mér finnst það dálítið óviðfelldið, jafnframt því, sem hv. flm. talar um það, að frv. eigi að koma í veg fyrir það, að einstakir menn geti haft gagn af hinum opinberu sjóðum, þá skuli hann fara að bollaleggja um það, að hið opinbera eigi að fá að sölsa undir sig fé sjóðanna. Ég held, að hið opinbera hafi ekkert leyfi fram yfir aðra til þess að fá þá peninga til afnota.