07.03.1933
Neðri deild: 18. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í C-deild Alþingistíðinda. (4293)

54. mál, vörslu opinberra sjóða

Jón Auðunn Jónsson:

Í 2. gr. frv. er svo ákveðið, að leita skuli úrskurðar fjmrh. í hvert sinn, er kaupa skuli verðbréf eða skuldabréf fyrir einstaka sjóði. Setjum nú svo, að nú þurfi að kaupa fyrir t. d. 100 kr., þá þarf eftir þessu úrskurð ráðh. um það, hvort kaupa skuli þetta bréf í Landsbankanum eða Búnaðarbankanum. Þetta nær bersýnilega engri átt.

Þá er talið óleyfilegt, að sjóður kaupi verðbréf með öðru verði en venjulegu markaðsverði, en að öðru leyti er stjórnanda hvers sjóðs skylt að ná sem hagkvæmustum kaupum fyrir sjóðinn. Verður ekki séð, hvernig þetta á að samrímast. Hv. 1. flm. var að tala um, að Sjálfstfl. hefði ráðstafað opinberum sjóðum óleyfilega. (HV: Þetta eru vísvitandi ósannindi). Hann ætti að minnast þeirra deilna, sem staðið hafa innan hans flokks um meðferð stjórnendanna á sjóðum Sjómannafélagsins og verkamannafélagsins Dagsbrúnar. (HV: Þetta er lygi). Þetta er rétt, þm. veit það. (HV: Það væri gott, ef hv. þm. þyrði að endurtaka þetta utan þings). Ég skal standa ábyrgð á ummælum mínum utan þings. - Hv. 1. flm. var að tala um það, að leggja ætti fé sjóðanna undir ríkissjóðinn, ef ríkissjóður væri í fjárþröng eða vandræðum. Þetta er algerlega gagnstætt tilgangi og vilja gefendanna, og kemur enda hvergi fram í frv.

Að svo mæltu vil ég endurtaka till. mína um það, að máli þessu verði að lokinni umr. vísað til fjhn.