23.03.1933
Neðri deild: 34. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í C-deild Alþingistíðinda. (4300)

54. mál, vörslu opinberra sjóða

Héðinn Valdimarsson:

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir undirtektir hans við þetta frv., þó hann hefði að vísu dálítið út á það að setja í einstökum atriðum. Ég skal játa, að samkv. 3. gr. frv. muni verða nokkuð hart að gengið ýmsum lánþegnum hinna opinberu sjóða, að svo miklu leyti sem sjóðirnir hafa veitt lán á annan hátt en ætlazt er til samkv. 2. gr. frv. En það er ekkert aðalatriði fyrir okkur flm. frv., að þessu ákvæði 3. gr. sé bókstaflega framfylgt. Við teljum, að þessi leiðrétting eða breyt. á fyrirkomulagi lánanna megi fara fram þegar hægast er að koma henni við og aðalatriðið er, að stífla sé sett í þennan farveg einkahagsmunanna fyrir framtíð alla.

Það er algerlega rangt hjá hv. frsm., að þessi uppsögn eða breyt. á útistandandi lánum sjóðanna brjóti í bága við lögin. Við ætlumst aðeins til þess, að lánunum sé sagt upp svo fljótt sem hægt er samkv. lánasamningum. - Ég get ekki fallizt á það, sem hv. frsm. sagði, að frv. geti staðið til bóta, þegar búið er að samþykkja brtt. hv. fjhn. Brtt. eru þannig sniðnar, að þær fella aðalkjarnann út tír frv., og þá er ekki hægt að setja inn í þær aftur þau höfuðatriði, sem í frv. voru. Það eru aðeins aukaatriði frv., sem tekin eru upp í brtt., svo sem um endurskoðun sjóðanna, og þó er því mjög ógreinilega fyrir komið.

Í 2. brtt. fjhn. er talað um, að stjórnendum opinberra sjóða sé skylt að birta reikninga þeirra árlega í opinberu blaði eða riti, áritaða af endurskoðendum, skipuðum, kosnum eða tilnefndum á annan hátt. Af hverjum eiga þeir að vera skipaðir, ef ekkert er um það sagt í skipulagsskrám sjóðanna? Og hverjir eiga að kjósa eða tilnefna þessa endurskoðendur? Þetta svífur algerlega í lausu lofti hjá n., og virðist það gert til þess eins að komast framhjá yfirumsjón og endurskoðun fjmrn. á sjóðunum. Hv. frsm. sagði, að frv. og brtt. lægju nú hér fyrir þd. til álits og úrskurðar, og gæti hún því valið um, hvort hún aðhylltist heldur. Það veit ég vel. En við flm. viljum heldur, að frv. sé hreinlega fellt heldur en að farin sé sú krókaleið, sem felst í brtt. Það er miklu drengilegra fyrir þá, sem vilja koma frv. fyrir kattarnef.

Þá sagði hv. frsm., að veðdeild Landsbankans sæktist ekki eftir að selja bréf sín til einstakra stofnana og sjóða. En það er auðvitað, að þegar stjórnendum veðdeildarinnar er kunnugt um, að sjóðirnir og stofnanirnar lána fé sitt beint til einstakra manna, og það meira en veðdeildin, þá er til lítils fyrir veðd. að falast eftir því fé, enda ætti það að bjóðast henni. Stjórnendur veðd. hljóta því að bjóða bréfin út, því að það er engin von til þess, að þeir geti verið á snöpum út um allt land eftir lánum. Ég gat um það áður, við 1. umr. þessa máls, og hæstv. forsrh. minntist á það sama, að óheppilegt væri að selja veðdeildarbréfin utan við bankana í ýmsum sjóðum. Það leiðir til mismunandi gengis á bréfunum, þannig að verðmunurinn hefir verið frá 12- 15%, sem náttúrlega kemur einstökum lánþegum til tekna eða taps, eftir tilviljun, nema forstöðumenn sjóðanna séu svo óheiðarlegir, að þeir stingi þessum verðmun eða bónus af bréfunum í sinn eigin vasa; en því geri ég varla ráð fyrir.

En það má alveg komast hjá þessu braskgengi á veðdeildarbréfunum. Ég sé ekki, hvers vegna opinberu sjóðirnir eiga að vera að sækjast eftir fasteignalánum, ef þeir geta fengið peninga sína eins vel eða betur tryggða á annan hátt. Ég skal taka t. d. Brunabótafél. Ísl., sem tekur á móti peningum (iðgjöldum) úr öllum landshlutum. Hvers vegna á það að lána fé til einstakra manna hér í Rvík gegn fasteignaveðum? Það er auðskilið öllum óhlutdrægum mönnum, að peningunum, sem eru í umferð í landinu, yrði yfirleitt miklu betur varið, ef úthlutun þeirra stæði undir einni yfirumsjón, heldur en þegar 1- 200 smábankar eru látnir fúska við það.