07.03.1933
Neðri deild: 18. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í C-deild Alþingistíðinda. (4330)

65. mál, prestkallasjóð

Flm. (Magnús Jónsson):

Ég vil ekki metast um það, í hvora n. málið fer, en úr því að frv. um læknahéraðasjóði var vísað til allshn., þá er rétt, að þetta frv. fari þangað líka. Hefi ég ekkert á móti því í sjálfu sér, að málið fari í menntmn., en ég treysti líka allshn. til að afgreiða það sæmilega, og þar sem engin till. hefir komið fram um það, að því verði vísað til menntmn., en hinsvegar virðist eðlilegast, að bæði þessi mál fari til sömu n., þá legg ég til, að því verði vísað til allshn.