31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2675 í B-deild Alþingistíðinda. (4390)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Ingvar Pálmason:

Þetta frv. er komið frá hv. Nd., og eins og þingheimi er kunnugt, þá fer það fram á, að gerðar verði breyt. á lögum um bann gegn dragnótaveiðum í landhelgi, um að veitt verði undantekning frá þeim lögum, sem bundin sé við viss svæði af landhelginni, og er sú breyt. fólgin í því, að lengdur verði sá tími, sem leyft er að veiða með dragnót í landhelgi.

Þetta mál hefir verið sótt og varið af miklu kappi. En telja má, að það sé ein af þeim ráðstöfunum, sem nauðsynlegt er að framkvæma til þess að bæta úr ástandinu og erfiðleikunum, sem nú eru fyrir höndum, sérstaklega að því er snertir smærri útgerðarmenn. Sá hv. þm., sem flutti þetta frv. í Nd., gerði það af alveg sérstökum ástæðum. Og ástæðurnar eru þær, að nú er fengin full vissa fyrir því, að þær fisktegundir, sem veiddar eru í dragnót, sérstaklega kolann, er hægt að selja hér innanlands fyrir gott verð. Áður hefir það nokkuð dregið úr áhuga manna fyrir því að notfæra sér þessa fiskveiðaaðferð, að erfiðlega hefir gengið um markaðsmöguleika fyrir kolann. Ég þarf ekki að lýsa því, öllum hv. þdm. er það vafalaust kunnugt, að sænska frystihúsið hér í Rvík hefir boðizt til að gefa ákveðið verð fyrir kolann og annan fisk, sem veiddur kynni að verða í dragnætur á smábáta, en það er jafnframt bundið þeim skilyrðum, að þessi veiði verði byrjuð fyrr en lögin gera nú ráð fyrir. Ég ætla ekki að fara út í þau andmæli, sem flutt hafa verið gegn þessu máli. En hingað til finnst mér, að það hafi verið þyngst á metunum, hvað kolaveiðarnar hafa borið sig illa. Hinu verður ekki neitað, að því hefir verið haldið fram með talsverðum rökum, að kolaveiðar með dragnót í landhelgi væru spillandi. Ég skal ekki fara langt út í það mál, en get þó viðurkennt, að ég stend það mikið í gamla tímanum, að ég trúi, að slíkt geti átt sér stað, Sérstaklega ef möskvastærðin á veiðarfærunum er svo ógætilega þröng eða lítil, að mikið af ungviði sezt í nótina þegar hún er dregin eftir botninum, ef þá er ekki skeytt um að sleppa aftur því smælki úr nótinni, sem ekki er markaðshæft. Að þessu leyti getur það verið rétt, að dragnótaveiðin sé spillandi, og eitt er víst, að nágrannaþjóðir okkar hafa fundið ástæðu til að setja ákvæði um möskvastærð á dragnótum, a. m. k. á vissum svæðum. Hitt held ég, að séu öfgar, að þessi veiðarfæri eyðileggi gróður á sjávarbotni, svo að fisktegundir geti ekki þrifizt þar á eftir. En ég sé ekki ástæðu til að þrátta mikið um þetta mál; reynslan og vísindin verða að skera úr því.

Mér virðist það vera aðalatriðið í þessu máli, að nú eru fengnir möguleikar til að stunda þessar veiðar á tilteknum svæðum, með fullri vissu um, að gott verð fæst fyrir fiskinn. Og ef sú vissa væri ekki fyrir hendi, þá tel ég, að þetta mundi mjög orka tvímælis. Nú er þannig ástatt, bæði hér við Faxaflóa og í Vestmannaeyjum, að mikill hluti af bátaflotanum er aðgerðarlaus yfir sumarmánuðina, og alstaðar kveður það við, að atvinnuleysi vofi yfir. Það virðist því vera nokkuð viðurhlutamikið að sporna við því, að þessi tilraun verði gerð. Ég skal ekki fara langt út í þær áætlanir, sem gerðar hafa verið um þann fjárhagslega hagnað, sem landsmönnum gæti hlotnazt af þessari veiði í sumar, en ég hygg, að það hafi verið færð gild rök fyrir því, að hann yrði talsvert mikill. Ég hefi heyrt nefnda hálfa millj. kr., og er það ekki ósennileg áætlun.

Nú stendur svo á, að talsvert margir bátar eiga veiðarfæri til að stunda þessar veiðar á þeim svæðum, sem opnuð verða. Og því hefir verið haldið fram, að á undanförnum árum hafi þessir bátar tapað á kolaveiðunum, en mér finnst það einmitt styðja að því, hversu nauðsynlegt það er að gera þessa tilraun og vita, hvernig hún gefst. Og ef þessi undanþága verður ekki leyfð, þá er alls ekki hægt að stunda kolaveiðarnar öðruvísi en verið hefir, og að líkindum með einhverju tapi. Ég tel allt of viðurhlutamikið að gera ekki þessa tilraun, þar sem veita má töluvert mörgum mönnum atvinnu við að draga á land afla fyrir nokkur hundr. þús. kr., og það án þess að þrengt verði að markaðsmöguleikum fyrir aðrar fisktegundir. Og þegar þess er einnig gætt, að lögin eru tímabundin, þá virðist ekki mikið í hættu. Svo að mér sýnist ekki hægt að forsvara það að neita um þessa heimild. Ég hefi því að vandlega yfirveguðu máli tekið þá afstöðu að mæla með því, að þetta frv. verði samþ., og mun greiða því atkv. mitt.

Ég get einnig vitnað til þess, að á síðasta þingi taldi ég varhugavert að sinna þessum veiðum, ef engir möguleikar væru til þess að byrja á þeim fyrr en lögin þá heimiluðu. Þess vegna var ég einn af þeim hv. þm., sem skrifuðu undir tilmæli til stj. um að veita undanþágu með bráðabirgðalögum. Ég vænti, hvernig svo sem fer um þetta mái í þessari hv. d., að það verði bæði sótt og varið með gætni og án þess að óþarfa öfgar komist inn í það. Það hygg ég, að verði bezta leiðin til þess að hitta á réttu úrlausnina.