31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2677 í B-deild Alþingistíðinda. (4392)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Jakob Möller [óyfirl.]:

Ég þarf ekki að verða langorður. Ég geri ráð fyrir, að hæstv. forseti haldi okkur hér á fundi þangað til a. m. k. þessari umr. þessa máls er lokið, svo að það þýðir lítið að ætla sér að beita hér málþófi, enda hefi ég enga tilhneigingu til þess að gera það, heldur vil ég og tel mér skylt að gera grein fyrir afstöðu minni til málsins. Eins og kunnugt er, hafa verið bannaðar botnvörpuveiðar hér við land innan landhelgi, og víðar en hér, því að þó að ég sé ekki sérstaklega fróður í þeim efnum, þá veit ég ekki betur en að það sé gert í öllum löndum, þar sem fiskveiðar eru nokkrar að mun. Hér er um eina tegund botnvörpuveiða að ræða, og þó að hún sé e. t. v. ekki eins skaðleg eins og aðrar teg. botnvörpuveiða, get ég ekki efazt um, að hún eigi sammerkt þeim að því leyti, að hún sé að meira eða minna leyti skaðleg, — skaðleg á tvennan hátt, eins og hv. 2. þm. S.-M. drap á, að hún veldur því, að ungviði fiskjarins verður grandað umfram það, ef slíkar veiðar væru ekki stundaðar; ennfremur á annan hátt, að hún gerir öðrum mönnum, sem stunda veiðar með öðrum hætti, erfiðara fyrir með að bjarga sér. Ég hygg, að það sé vafalaust um þessa veiðiaðferð, að hún hafi þennan ágalla í verulegum stíl. Um það skal ég aðeins vísa til erindis, sem þinginu hefir verið sent frá þekktum manni úr veiðistöð hér suður með sjó, sem kallað er, þar sem hann lýsir því, hvaða áhrif þessi veiði hafi á aðrar fiskveiðar á því svæði, sem þar um ræðir. Þessi maður er hreppstjóri í sinni sveit, og ég hefi aldrei heyrt það vefengt, að hann væri merkur maður. Hann gerir grein fyrir þessu á þann hátt, að ekki er nema um tvennt að velja. Annaðhvort segir hann vísvitandi ósatt af sinni reynslu í þessum efnum eða það hlýtur að vera augljóst hverjum manni, að þessi veiðiaðferð er stórskaðleg fyrir þá menn, sem stunda annarskonar veiðiaðferðir. Hann gerir grein fyrir því, að fiskurinn hafi beinlínis farið af þeim miðum, sem undanfarið hafi verið tiltölulega uppgripaafli af öðrum fisktegundum, og hafi farið vaxandi ár frá ári, þangað til dragnótaveiðarnar byrjuðu, þá þverbreytti um, þannig að annara veiðiskapur varð sem enginn á þessu svæði. Þetta segir sá merki maður í sínu erindi til Alþingis, og ég ætla honum ekki, að hann fari með vísvitandi ósannindi til þess að spilla fyrir nágrönnum sínum, sem hafa stundað þessa veiði. Þar við bætist, þó að mikið sé talað um, hver lífsnauðsyn þetta sé þeim mönnum, sem aðstöðu hafi til þess að stunda þessa veiði, að reynsla okkar er sú af þessum veiðum, að ávinningurinn við þær hefir orðið sáralítill, og það er eftirtektarvert um hv. 2. þm. S.-M., sem á undanförnum þingum hefir fylgt því af nokkru kappi að fá slíka undanþágu fyrir sína sveitunga, þ. e. a. s. fyrir Austfirðinga, að hann virðist ekkert kæra sig um það, því eins og kunnugt er, nær þetta frv. alls ekki til Austfjarða, heldur aðeins frá Hjörleifshöfða vestur um til Látrabjargs. Austfirðingar eiga ekki að fá að vera aðnjótandi þessarar blessunar, að fá að veiða með dragnót þennan tíma. Hvernig stendur á því, að hv. 2. þm. S.-M. otar ekki tota sinna héraðsmanna, sem honum ber þó skylda til, ef hann hefir í raun og veru trú á því, að þetta sé þeim svo blessunarríkt sem ráða mætti af því, sem hann sagði um þetta mál hér í upphafi þessarar umr.? Ég get ekki ályktað annað af því en að hann hafi ekki þá reynslu, að sveitungar hans hafi haft mikinn ávinning af þessari veiðiaðferð þann tíma, sem þeir nú stunda hana, og það á vissulega við um þá, að þeir hafa lagt í mikinn kostnað til þess að afla sér þessara veiðarfæra, svo að ástæða virðist vera til þess að játa þá vera aðnjótandi þessara hlunninda, ekki síður en aðra landsmenn. Mér er sagt, að ágóðinn af þessari veiði hafi reynzt sáralítill. Ég hefi að vísu heyrt þær sögur úr einni veiðistöð, að þar hafi orðið e. t. v. einhver tekjuafgangur af þessum veiðiskap, en það var með sérstökum verzlunarháttum, eftir því sem mér er skýrt frá, sem ég tel, að ekki sé verulega byggjandi á til frambúðar, ef satt er, að þar hafi verið að ræða um sölu á vöru í vöruskiptum, í staðinn fyrir vöru, sem annars er bönnuð sala á í landinu. Jafnvel þó að um einhvern ávinning væri að ræða við það, að þessi veiði væri leyfð, menn gætu haft góða atvinnu og góðar tekjur, þá fæ ég ekki betur séð en að jafnframt væri minni atvinna og minni tekjur fyrir aðra menn, sem stunda svipaða veiði, þ. e. a. s. veiði í því skyni að flytja fisk út kældan eða frosinn. Eins og kunnugt er, verður fyrst um sinn takmarkaður innflutningur á ísuðum fiski til Englands, sem er aðallandið fyrir slíkan innflutning. Ég fæ ekki betur séð en að af því leiði, að minni markaður verði fyrir veiði annara manna, sem hafa lagt það fyrir sig að stunda veiði í því skyni að flytja aflann til Englands, svo að þjóðarhagur er enginn að þessu. Ég tók að vísu eftir því, að hv. 2. þm. S.-M. sagði, að með þessu væri ekki að neinu leyti þrengt að markaði fyrir fisk annara. Mér er það ekki ljóst, hvernig hann getur fullyrt það, því að jafnvel þó að svo væri, að markaður væri að einhverju leyti fyrir þennan fisk annarsstaðar en í Englandi, þá er engin trygging fyrir því, að hann verði ekki seldur þar a. m. k. jöfnum höndum. Þá sé ég ekki, að árangurinn af þessu verði annar en sá með samþykkt þessa frv. að styðja útlent atvinnufyrirtæki, sem er að vísu allra góðra gjalda vert, en á kostnað innlendra manna. — Það hefir orðið úr, að ég hefi þegar við þessa umr. ásamt hv. þm. Snæf. flutt brtt. við frv., og er brtt. á þskj. 882. Hv. þdm. hafa að sjálfsögðu kynnt sér þessa brtt., og sjálfsagt er ekki fyrirhafnarmikið að gera það ljóst, í hvaða tilgangi hún er fram flutt og hvað af henni leiðir. Hún er byggð á því, að vegna þess að þessi veiðiaðferð sé í sjálfu sér skaðleg að því leyti, að hún spilli fyrir veiði annara á sömu slóðum, þá er það lagt til, að á hverjum flóa eða firði, sem þessi undanþága nær til, verði aðeins leyfð slík veiði þeim mönnum, sem búsettir eru í þeim héruðum, sem að þeim flóa eða firði liggja, sem um er að ræða. Með því móti er það tryggt, að ekki komi fleiri til þess að urga upp botninn og spilla veiðinni fyrir öðrum þeim, sem sjó stunda á sömu slóðum, en menn úr sama héraði, og það er ákaflega mikil sanngirni í því, að veiði manna á viðkomandi stað sé ekki spillt með veiðiskap manna úr öðrum héruðum, þar sem ekki getur verið um það að ræða, að sveitarfélagið hafi neinn ávinning af þeim atvinnurekstri; auk þess verður að sjálfsögðu minna að gert og spjöllin minni af veiðinni en ella. Þetta tekur ekki aðeins til allra þeirra veiðimanna, sem búsettir eru hér á landi, utan þeirra héraða, sem um ræðir, heldur líka manna, sem njóta sömu réttinda og Íslendingar, sem hefðu þá fullkominn aðgang að þessari veiði á sömu slóðum. Ég tel engan vafa á því, að það sé fullkomlega heimilt að setja þetta ákvæði í l., og að það komi ekki í bága við ákvæði sambandsl., þar sem þetta gengur jafnt yfir innlenda menn eins og þá menn, sem hér eiga að njóta jafnréttis við Íslendinga, Færeyinga og Dani. Ef heimildin væri almenn, myndu þeir einnig mega stunda veiði á sama tíma og Íslendingar. Það er augljóst, að tilgangurinn með þessari takmörkun er ekki aðeins sá, að hindra þeirra veiði, heldur að draga úr þessum veiðiskap yfirleitt, vegna þess að ég tel hann yfirleitt skaðlegan, og því sé skynsamlegt, að hann sé sem minnstur, ef hann er leyfður á annað borð. Hinsvegar geri ég ráð fyrir, að því verði vel tekið af þeim mönnum, sem rétt hafa til veiðanna á hverjum stað, að það sé dregið úr þeim fjölda, sem geti flykkzt þar að og keppt við þá og gert þeirra veiðivonir minni en ella. Ég hygg því, að það væri skynsamlegt af hv. dm. að taka þessari till. vel og samþ. hana, því ég hygg, að hún eigi að geta náð fullt svo vel þeim tilgangi að bæta úr erfiðleikum þeirra manna, sem búsettir eru á þeim slóðum, sem hér er um að ræða. Ég skal taka það fram, að við flm. till. greiðum að sjálfsögðu atkv. á móti frv., ef brtt. verður felld.