02.06.1933
Efri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2700 í B-deild Alþingistíðinda. (4405)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Ingvar Pálmason:

Ég er hræddur um, að jollan hafi slitnað aftan úr í þetta sinn hjá hv. þm., því að ég álít, að álit hv. þm. hafi komið svo greinilega fram við 2. umr. þessa máls, að ekki þurfi nál. frá honum. Auk þess er ekki hægt að skila nál. á milli 2. og 3. umr., og þess vegna ekki að vænta þess, að sérstök ákvæði standi um það í þingsköpum. Hv. þm. vill aðeins láta leita afbrigða um þetta mál til þess að tefja fyrir afgreiðslu þess.