02.06.1933
Efri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2700 í B-deild Alþingistíðinda. (4409)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Magnús Torfason:

Ég hlustaði á síðustu umr. þessa máls og mér fannst þar gæta nokkuð mikils kapps. Ég skal játa, að ég hefi ekki mikla trú á, að þessi veiði verði mjög arðvænleg. En þó er ekki loku fyrir það skotið, sérstaklega ef sölumöguleikar verða bættir erlendis. En til þess að þessi atvinnugrein geti borið sig fyrir þá menn, sem hana stunda, mun þeim ekki veita af að hafa allt svæðið til umráða. Samkv. brtt. hv. 1. þm. Reykv. og hv. þm. Snæf. er svæðið höggið í sundur, þannig að Breiðfirðingar mega fara með dragnætur sínar aðeins um Breiðafjörð, og þeir, sem búa við Faxaflóa, aðeins um Faxaflóa. En ef undanþágan er veitt á annað borð, þá tel ég rétt, að ekkert sé látið standa í vegi fyrir því, að atvinnan verði arðvænleg. Hinsvegar veit ég ekki, hvort Vestmannaeyingar verða feitir af því að sækja veiðiskap hingað. Það er öllum kunnugt, hvaða kostnað það hefir í för með sér að leita til sjósóknar í aðrar verstöðvar. Mér er kunnugt um, að aðkomubátar, sem jafnvel hafa skarað fram úr, hafa ekki haft upp kostnaðinn, þrátt fyrir gífurlegan afla. Munurinn er svo mikill, að heimabátar, sem kannske fiskuðu þriðjungi minna, báru meira úr býtum heldur en aflahæstu aðkomubátar, og komust vel af, þó hinir hefðu varla fyrir kostnaði. Þess vegna er sennilega ekkert tekið af Stokkseyringum, Eyrbekkingum og Vestmannaeyingum, þó að þeir fái ekki að veiða á þessum slóðum. En ef brtt. mín verður samþ., þá er ekki hætta á utanaðkomandi samkeppni um þessa atvinnu, og sérstaklega verður flatfiskið ekki uppurið á 1—2 árum, heldur má treina það til nokkurra ára. Þessi lög eru tilraun, og mér finnst eðlilegt, að ekki sé farið lengra en svo, að sýnt verði, hver árangur verður af þessari tilraun, hvort hún verður til bóta eða ekki. Það er gott að hafa allan vara á um þetta og gefa ekki fordæmi, sem erfitt yrði að taka aftur. En ef lögin verða látin fara út úr d. eins og frv. kom inn í hana, þá gefa þau illt fordæmi. Og það er hægara að setja slíkt fordæmi en kippa því burt. Það mun flestum finnast, að verra sé að fá peninga, sem svo eru heimtir af mönnum aftur, heldur en að hafa aldrei tekið á móti þeim.

Ég legg svo til, að þessi miðlunartill. mín verði samþ., þar sem hún er til stórra bóta á frv.