29.05.1933
Efri deild: 83. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2714 í B-deild Alþingistíðinda. (4431)

97. mál, veitingaskattur

Ingvar Pálmason:

Meiri hl. fjhn. hefir leyft sér að bera fram brtt. við 15. gr. frv., sem gerir sömu verkanir og brtt., sem við tókum aftur við 2. umr. Hún er orðuð á annan veg. Báðar þessar brtt. fella niður 2. mgr. 15. gr. frv.

Það má vel vera, að einhverjir hv. dm. hafi misskilið brtt. við 2. umr. En þetta hygg ég, að geti nægt, því brtt. virðist nú skýr.

Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að tala um frv. sjálft.