18.03.1933
Neðri deild: 30. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

3. mál, landsreikninga 1931

Jón Auðunn Jónsson:

Ég vildi aðeins gera fyrirspurn til hæstv. atvmrh. út af 26. aths. Ég sé, að það er varið til tilraunabús á Hólum um 46 þús. kr. Ég vildi gjarnan fá að vita, í hverju þessi mikli kostnaður liggur og hvað ætla má, að rekstrartap af þessu fyrirtæki verði á næsta ári, og hvort haldið verður áfram með rekstur þessa tilraunabús eða ekki.