02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2716 í B-deild Alþingistíðinda. (4445)

97. mál, veitingaskattur

Magnús Jónsson:

Ég hreyfði því við 1. umr. þessa máls, að mér fyndist sjálfsagt að vísa þessu máli til n., því að frv. myndi vera mjög gallað að forminu til. Sú till., að vísa málinu til n., fékk ekki byr, en það var sagt utan fundar, að það stæði til að láta fara fram endurskoðun á frv. Þar sem ég sé ekki, að þetta loforð hafi verið efnt, vil ég ítreka þessa till. mína og legg til, að málinu verði vísað til tilsvarandi n. og það var í hv. Ed., sem mun hafa verið fjhn.