02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2716 í B-deild Alþingistíðinda. (4446)
97. mál, veitingaskattur
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Ég skal geta þess, að brtt. verða lagðar fram í dag. Mér hafa þegar borizt till. frá skrifstofustjóranum í fjmrn. og vænti frekari till. frá tollstjóra, og verða þær bornar fram við 3. umr. Þær eru ekki viðvíkjandi upphæð skattsins, heldur við form og framkvæmd, sem þessir embættismenn telja betur henta.