08.03.1933
Neðri deild: 19. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2732 í B-deild Alþingistíðinda. (4470)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Tryggvi Þórhallsson:
Þó að þetta mál, sem hér liggur fyrir, sé að mörgu leyti hið merkasta og afleiðingaríkasta, þá mun ég aðeins fara um það fáum orðum að þessu sinni. Það er vitað og yfirlýst af hæstv. forsrh., að þetta frv. er flutt í beinu framhaldi af myndun samsteypustjórnarinnar. Það er flutt sem tilraun til þess að leysa þetta mikla vandamál. Ég skal fúslega viðurkenna, að sum atriði þessa frv. eru góð, t. d. það, að gert er ráð fyrir óskertum rétti héraðanna til þess að hafa sérstaka fulltrúa á Alþingi. En að öðru leyti eru ýmsir gallar á frv., og get ég því ekki fallizt á, að það verði samþ. óbreytt. Hinsvegar er skylt að taka það til nákvæmrar athugunar sem eitt af vandasömustu málum þingsins, og leggja fram fyllstu alúð til þess að fá sem bezta lausn á því.
Það hefir af sumum verið talinn einn aðaltilgangur og hlutverk samsteypustj. að leysa kjördæmamálið. En hinsvegar lít ég svo á, að af þeim mörgu úrlausnarefnum, sem fyrir samsteypustj. lágu, hafi það verið höfuðverkefnið að leysa úr örðugleikum atvinnuveganna og sjá þeim farborða nú í kreppunni. Það eru mál, sem þola enga bið. Og ég er viss um, að mikill meiri hl. þjóðarinnar ætlast til þess, að lausn þessara mála gangi fyrir öllu öðru. En þessu stóra máli, sem hér liggur fyrir, á vitanlega að sýna fulla alúð og leysa það svo fljótt sem auðið er.